Sumarkveðja
Kæru foreldrar og nemendur í Hvaleyrarskóla.
Stjórnendur og starfsmenn Hvaleyrarskóla óska ykkur ánægjulegs sumarleyfis.
Skrifstofa skólans er lokuð frá og með mánudeginum 22. júní. Hún opnar að nýju mánudaginn 10. ágúst og verður opin frá kl. 9:00-14:00.
Sjáumst síðan hress og kát á skólasetningunni þriðjudaginn 25. ágúst.
Minnum á að skóladagatalið fyrir næsta skólaár má nálgast hér á heimasíðu skólans.
Með því að smella hér má sjá myndir frá útskrift 10. bekkjar sem fór fram mánudaginn 8. júní sl.
Með sumarkveðjum,
starfsfólk og skólastjórnendur Hvaleyrarskóla.