Stefnumót við jólabækurnar
Öllum bekkjum skólans er boðið að koma á skólasafnið til að fá kynningu á nýjustu bókunum. Hafa umsjónarkennarar verið duglegir að bóka tíma og nemendur notið þess að fá kynningu á bókunum og í kjölfarið skoðað þær og skráð á óskalista séu þetta bækur sem þeim langar í í jólagjöf.
Hér látum við eina örsögu fylgja með:
Stúlka í 5. bekk sagði vinkonu sína, sem væri ekki mikill lestrarhestur, hafa komið á kynningu hjá Sif á bókasafninu og í kjölfarið langaði hana að lesa allar bækurnar. Hversu skemmtilegt er það!
Gleðileg bókajól.