Skólastarf í kjölfarið á nýjum sóttvarnarreglum
Ágætu foreldrar,
Skólastjórnendur hafa síðustu daga unnið að skipulagi skólastarfs vegna þeirra aðstæðna sem nú eru í okkar samfélagi. Starfsfólk vinnur í dag að útfærslum í sínum árgöngum og faggreinum.
Skipulagið er nokkuð miðlægt það er að viðvera nemenda er um það bil eins í öllum grunnskólum bæjarins en með smá breytingum eftir aðstæðum í hverjum skóla.
Hvaleyrarskóla er skipt niður í 16 kennsluhólf, starfsfólk og nemendur mega ekki fara á milli hólfa. Þá má enginn utanaðkomandi fara inn í skólann eða á ákveðin svæði. Þetta á líka við um foreldra sem mega ekki koma inn í skólann. Í Hvaleyrarskóla eiga nemendur að mæta í skólann við þann inngang sem tilheyrir þeirra svæði. Ath. að nemendur geta ekki mætt fyrr en skólinn byrjar. Nemendur mæta í sínar heimastofur til umsjónarkennara sem hér segir:
Inngangur á neðri hæð sem er nær göngustíg við hlið skólans:
- 1. bekkur kl. 8:20 - 13:20 og svo tekur Holtasel við fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.
- 2. bekkur kl. 8:30 - 13:20 og svo tekur Holtasel við fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.
Inngangur á neðri hæð sem er nær miðdeildinni:
- 3. bekkur kl. 8:20 – 13:20 og svo tekur Holtasel við fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.
- 4. bekkur kl. 8:30 – 13:20 og svo tekur Holtasel við fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.
Inngangur miðdeildar:
- 5. IÓ kl. 9:00 - 11:40
- 5. SA kl. 9:05 – 11:45
- 6. IDI kl. 9:10 - 11:50
- 6. NBS kl. 9:15 – 11:55
- 7. BJG kl. 9:20 - 12:00
- 7. HÁ kl. 9:25 – 12:05
Inngangur elstu deildar:
- 8. MS kl. 9:00 - 11:40
- 8. WR kl. 9:05 – 11:45
- 9. GB kl. 9:10 - 11:50
- 9. SB kl. 9:15 – 11:55
- 10. MK kl. 9:20 - 12:00
- 10. GRB kl. 9:25 – 12:05
Nemendur í 5. – 10. bekk þurfa að vera með grímur og mega nota fjölnota grímur en einnig verður hægt að fá grímu í skólanum. Allt starfsfólk skólans mun vera með grímur. Þá viljum við biðja foreldra og nemendur um að virða þann tíma sem nemendur eiga ekki að koma í skólann þannig að ekki verði um mikla skörun að ræða milli kennsluhólfa. Kennslustofur verða opnar þegar nemendur koma í skólann og eiga nemendur að fara beint inn í sína umsjónarstofu með skófatnað og yfirhafnir. Nemendur í yngstu deild fara í frímínútur. Hjá eldri nemendum er einn bekkur eitt kennsluhólf og mega nemendur ekki blandast milli kennsluhólfa. Þar fara nemendur í hreyfitíma úti með kennurum ef veður leyfir og þá er einungis einn bekkur úti í einu.
Nemendur sem eru í ávaxta- og mataráskrift hjá Skólamat fá ávexti og heitan mat sem þeir borða í kennslustofunum. Þeir nemendur sem eru ekki í mataráskrift koma með nesti í skólann í samræmi við viðverutíma sinn. Nemendur og starfsfólk munu matast í kennslustofunni. Þá munu þeir nemendur í 1., 2., 3. og 4. bekk sem eru skráðir í Holtasel vera áfram í sinni heimastofu eða á svæði árgangsins og starfsmenn Holtasels koma í stað kennaranna og verða út viðverutímann í Holtaseli.
Við viljum minna foreldra á að tilkynna veikindi og leyfi eins og venjulega í Mentor, reynum að lágmarka hringingar í skólann. Alltaf skal velja skráningu fyrir heilan dag. Ef um langtímaveikindi er að ræða biðjum við foreldra um að tilkynna það sérstaklega til skólans með tölvupósti á stjórnendur.
Foreldrar og nemendur verða að fylgjast vel með vikuáætlun inni á Mentor en þar munu kennarar koma skilaboðum til nemenda um það nám sem fram fer næstu vikurnar. Nemendur í 5. – 10. bekk nota I-padinn og þurfa í sumum tilfellum að nota Google classroom til að vinna verkefni og skila til kennara, ásamt því að kennari setur þar inn skilaboð til nemenda. Þetta á við í þeim árgöngum sem eru vanir að vinna í því umhverfi.
Við hvetjum foreldra til að láta börnin sín nýta tímann vel við það nám sem sett er inn á Mentor og einnig minnum við á að allir nemendur frá 1. – 10. bekk eiga að lesa minnst 15 – 20 mínútur á dag og eru foreldrar beðnir um að kvitta fyrir lesturinn.
Við væntum eins og áður að gott samstarf verði á milli heimilis og skóla í þessum fordæmalausu aðstæðum. Þá minnum við á að börnin okkar þurfa á virkni og skipulagi að halda í þessum sérstöku aðstæðum.
Með góðum kveðjum,
Stjórnendur, kennarar og starfsfólk Hvaleyrarskóla.