Skólastarf á nýju ári
Ágætu foreldrar/forráðmenn
Hér fyrir neðan er póstur frá skrifstofu mennta- og lýðheilsusviðs.
Eins og fram hefur komið erum við að undirbúa breytingar með aukningu á kennslu
í 5. - 10. bekk frá áramótum. Nánari útlistun á kennslu hér í Hvaleyrarskóla
frá og með 4. janúar munum við senda út til ykkar í Hvalrekanum sem kemur á
morgun.
Með góðum kveðjum,
Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri.
Til starfsmanna og forráðamanna nemenda í grunnskólum Hafnarfjarðar.
Það er að koma jólafrí í grunnskólum Hafnarfjarðar og langþráð hvíld framundan.
Með þessum jólapósti viljum við þakka samstarfið alla haustönnina um leið
og við viljum kynna það skipulag sem tekur við byrjun janúar.
Eins og staðan er höfum við ekki fengið að vita hvort, og þá hverjar, verði
breytingar á reglum um skólastarf um áramótin. En núverandi reglur gilda til
31. desember.
Skólastjórnendur í grunnskólum Hafnarfjarðar hafa þó fengið þau tilmæli að
undirbúa breytingar með aukningu á kennslu í 5.-10. bekk frá áramótum á meðan
skóla- og frístundastarf í 1.-4. bekk verður óbreytt frá því sem nú er og
matarþjónustan og starfsemi félagsmiðstöðva sömuleiðis. Núna eru að jafnaði 4
kennslustundir í skóla í 5.-10. bekk en þær munu verða a.m.k. 5 á dag að
jafnaði, eða 25 á viku, í þessum árgöngum eftir áramótin. Þannig höfum við
ákveðið að láta aðstæður í hverjum skóla ráða, því þær eru mismunandi á hverjum
stað, því hversu mikil kennsla, og hvaða, verður í einstaka bekkjum í
skólum. Það leiðir til þess að ekki verður gefið að það verði jafnræði í
kennslutímamagni milli hafnfirskra grunnskóla hjá nemendum á sama aldri. Það
var ákveðið að opna á þennan möguleika frekar en að hafa áfram jafna kennslu
milli skóla sem hefði dregið úr fjölda kennslutíma hjá flestum. Valgreinar í
8.-10. bekk er ekki hægt að hefja enn sem komið er og Tækniskólinn hefur
tilkynnt að hann muni ekki vera með valgrein sína fyrir nemendur í 10. bekk sem
stóð til að yrði í vetur. Stefnt er að því að halda þessu fyrirkomulagi, ef
þess verður nokkur kostur, uns takmörkunum á skólastarfi verður aflétt og
hægt verður að fara í hefðbundið og fullt skólastarf.
Við væntum þess að jólahátíðin og áramótin verði ykkur öllum ánægjuleg og við
eigum áfram gott samstarf á næsta ári um að búa áfram til skólastarf sem svari
þörfum allra nemenda okkar fyrir menntun, jákvæð samskipti og vellíðan í námi
og leik.
Hafnarfirði 16. desember 2020.
Skrifstofa mennta- og lýðheilsusviðs