Skólasetning
Skólasetning 2. - 10. bekkjar verður á sal skólans þriðjudaginn 25. ágúst.
Nemendur mæti sem hér segir:
- Kl. 8:30 – 9:20 2.- 4. bekkur.
- Kl. 9:30 – 10:20 5.- 7. bekkur.
- Kl. 10:30 - 11:20 8.- 10. bekkur.
Vegna aðstæðna verður skólasetning hjá 2. - 10. bekk án foreldra. Kennsla hefst hjá öllum nemendum skólans miðvikudaginn 26. ágúst.
Nemendur í 1. bekk eru með sérstöku bréfi boðaðir til viðtals hjá umsjónarkennara þriðjudaginn 25. ágúst.
Miðvikudaginn 26. ágúst kl. 08:20 verður skólasetning á sal skólans hjá nemendum í 1. bekk. Með hverju barni mega að hámarki koma einn til tveir. Vinsamlega virðið sóttreglur og mælst er til þess að foreldrar komi með grímur á skólasetninguna. Að því loknu fara nemendur í sínar heimastofur og foreldrar verða eftir í salnum þar sem farið verður yfir hagnýtar upplýsingar er varðar skólagöngu barnsins.