Engin samræmd könnunarpróf í haust
Það verða engin samræmd próf í 4. og 7. bekk í haust eins og undanfarin ár. Nemendur í 4., 7. og 9. bekk í grunnskólum geta tekið ný hæfnimiðuð samræmd könnunarpróf næsta vor. Hefðbundin samræmd könnunarpróf verða því ekki lögð fyrir í haust. Fyrirlögn þessi verður fyrsta skrefið í átt að nýju fyrirkomulagi samræmds námsmats fyrir nemendur í grunnskólum. Meginmarkmið þess er að veita nemendum gagnlegar upplýsingar um námslega stöðu þeirra og vera kennurum, nemendum og foreldrum til leiðsagnar um áherslur í námi.