Tómstundamiðstöðin í Hvaleyrarskóla
Frístundaheimilið Holtasel
Frístundaheimilið Holtasel býður uppá fjölbreytt tómstundastarf fyrir nemendur í 1. - 4. bekk í Hvaleyrarskóla eftir að daglegum skólatíma lýkur. Foreldrar skrá börn sín eftir þörfum hvers og eins. Frístundaheimilið er staðsett á jarðhæð en er með sérinngang.
Opnunartími er frá kl. 13:00 til 17:00 á virkum dögum. Þegar frí er í skólanum á virkum dögum er opið í frístundaheimilinu frá klukkan 8:00 um morguninn og til 17:00 að undanskildu vetrarfríi en þá er lokað í frístundaheimilinu. Þessa daga er auglýst sérstaklega eftir skráningu þeirra barna sem eiga að mæta.
Í frístundaheimilinu kynnast börnin hinum ýmsu tómstundum. Leitast er við að hafa starfið sem fjölbreyttast svo að allir finni eitthvað við sitt hæfi m.a. með útiveru, fjölbreyttum leikföngum, spilum, föndurefni og
kubbum.
Beinn sími í frístundaheimilinu Holtaseli er 534-0200. Deildarstjóri er Margrét Heiða Magnúsdóttir, netfang: margretm@hvaleyrarskoli.is , gsm: 664 5778.