Dagbók


30.1.2012

Lestrarátak í Hvaleyrarskóla

Í dag hefst lestrarátak í Hvaleyrarskóla. Allar deildir skólans taka þátt lestrarátkinu sem stendur yfir frá 30. janúar – 29. febrúar 2012. (Meira)

 

27.1.2012

Ný heimasíða Foreldraráðs Hafnarfjarðar

Foreldraráð Hafnarfjarðar er samráðsvettvangur og málsvari foreldra grunnskólabarna í Hafnarfirði. Ný heimasíða Foreldraráðs Hafnarfjarðar er nú komin í loftið en slóðin er http://foreldrarad.hafnarfjordur.is.

 

27.1.2012

Hvaleyrarskóli er opinn í dag

Hvaleyrarskóli er opinn í dag. Klukkan 7.30 í morgun var búið að hreinsa aðkeyrsluna og bílastæðin við skólann.

 

Foreldrar eru minntir á reglur um viðbrögð við óveðri en í þeim segir m.a: "Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort fylgja þarf barni í skóla þótt engin tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll. Hið sama gildir ef foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa."
 

Frá Veðurstofu: Vaxandi suðaustanátt, 8-13 m/s og fer að snjóa kringum hádegi, en 13-18 og slydda eða rigning síðdegis. Hægari og rigning á morgun. Hlýnar í dag og hiti 1 til 5 stig með kvöldinu.
 

26.1.2012

Framhaldsskólakynning

Kynning á námsframboði framhaldsskólanna fyrir nemendur 10. bekkjar og foreldra þeirra fer fram í sal Flensborgarskóla í dag kl. 17.00-18.30.

 

Eftirfarandi framhaldsskólar verða með kynningarbás:

  • Borgarholtsskóli

  • Fjölbrautarskólinn í Breiðholti

  • Fjölbrautarskólinn í Garðabæ

  • Fjölbrautarskólinn við Árbæ

  • Flensborgarskóli

  • Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ

  • Hraðbraut

  • Iðnskólinn í Hafnarfirði

  • Kvennaskólinn

  • Menntaskólinn í Kópavogi

  • Menntaskólinn í Reykjavík

  • Menntaskólinn við Hamrahlíð

  • Tækniskólinn

  • Verslunarskólinn

Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum.
 

26.1.2012

Vond færð í bænum

Skafrenningur er nú á höfuðborgarsvæðinu og hefur verið síðustu klukkustundir. Lögreglan hefur varað fólk við að æða af stað á illa búnum farartækjum. Klukkan 8 í morgun var ekki búið að moka bílastæðin við skólann og mörg ökutæki föst í sköflum í hverfinu. Við hvetjum fólk því til að íhuga það vel áður en það heldur út í einhverja óvissu með börnin sín. Annars bendum við enn og aftur á eftirfarandi tengil um viðbrögð við óveðri.

 

20.1.2012

Ný gjaldskrá heilsdagsskólans

Ný gjaldskrá fyrir heilsdagsskólann tekur gildi frá og með 1. febrúar nk.

 

Allt að 20 klst. á mán.

6000 kr.

21 - 40 klst. á mán.

10.500 kr.

41 - 60 klst. á mán.

14.000 kr.

Hámarksgjald (80 klst.)  

16.500 kr.

Systkinaafsláttur

50%

Klukkustundargjald umfram 80 klst. 

270 kr.

Síðdegishressing    

190 kr.

 

19.1.2012

Foreldradagur

Miðvikudaginn 25. janúar 2012 eru nemendur og foreldrar þeirra boðaðir til viðtals við umsjónarkennara. Kennsla samkvæmt stundaskrá fellur niður þennan dag.

Að loknum viðtölum eru foreldrar beðnir um að taka þátt í viðhorfskönnun. Svörunin fer fram í tölvustofu skólans nr. 33 og tekur það foreldra um 10 mínútur að svara spurningunum. Viðhorfskönnunin er mikilvægur þáttur í sjálfsmati skólans.

 

10.1.2012

Þegar veður er vont

Að gefnu tilefni viljum við benda foreldrum á áætlun vegna röskunar á skólastarfi vegna óveðurs. Áætlunina má finna hér.

 

roskun_skolastarfi

 

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu þriðjudaginn 10. janúar 2012: Suðvestan og vestan 15-23 m/s og éljagangur. Lægir í nótt, fremur hæg vestanátt á morgun og lítilsháttar él. Frost 0 til 5 stig.
 

20.12.2011

Starfsfólk Hvaleyrarskóla óskar nemendum sínum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökk fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.

 

Skólastarf hefst aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 4. janúar 2012.

 

16.12.2011

Samstarf við leikskólana á Holtinu

Fyrir nokkru fengum við í heimsókn elstu börnin á leikskólunum Álfasteini og Vesturkoti. Fyrstu bekkirnir hjá okkur tóku á móti gestunum og sungu allir hóparnir nokkur lög saman. Á eftir fengu allir mandarínur og piparkökur. (Myndir)

 

 

Á mánudaginn komu síðan börn af leikskólanum Álfasteini með myndarlegt jólatré færandi hendi. Sögðu börnin að þau hefðu fundið það á leiksvæði Álfasteins en það hefði að vísu verið Stekkjarstaur sem hefði skilið það eftir þar. Leikskólinn Álfasteinn ætlar að halda sitt árlega jólaball að þessu sinni í sal Hvaleyrarskóla. (Myndir)

 

 

16.12.2011

Bóndi í heimsókn

Berglind Hilmarsdóttir, bóndi frá Núpi undir Eyjafjöllum kom í skólann síðastliðinn miðvikudag og heimsótti sjöundu bekkinga. Hún sýndi þeim kvikmynd um helstu störfin sem unnin eru á bóndabæjunum auk þess sem aðföng og framleiðsla búanna var kynnt. Berglind ræddi einnig við nemendur um bústörfin og ýmislegt sem tengist þeim. Nemendur sem voru mjög áhugasamir spurðu margra spurninga og gaf hún sér góðan tíma til að svara þeim. (Myndir)

 


 

16.12.2011

Umferðarfræðsla fyrir 10. bekkinga

Á miðvikudaginn heimsótti Berent Karl Hafsteinsson 10. bekkingana okkar og hélt fyrirlestur um slysahættur í umferðinni. Hann sagði nemendum frá alvarlegu mótorhjólaslysi sem hann lenti í vegna hraðaksturs og afleiðingum þess. Í slysinu hlaut hann fjölmörg beinbrot og var vart hugað líf. Berent Karl lýsti því á tilþrifamikinn hátt fyrir nemendum hvernig líf hans hefur markast af þessum örfáu augnablikum á unglingsárum. Í lokin sýndi hann nemendum gervifætur sem hann notast við. Nemendur hlustuðu af mikilli athygli á frásögn Berents Karls og munu örugglega taka mikið mark á hans boðskap. (Myndir)

 

 

13.12.2011

Barátta gegn munntóbaki

Tónlistarmaðurinn Jón Ragnar Jónsson heimsótti 8. bekkinga í síðustu viku og ræddi við þá um skaðsemi munntóbaks. Heimsóknin var í boði Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar. Jón Ragnar náði mjög vel til nemendanna og er greinilega góð fyrirmynd fyrir unga fólkið okkar. (Myndir)

 

 

13.12.2011

Jólaföndur Foreldrafélags Hvaleyrarskóla

Það var sannkölluð jólastemning laugardaginn 3. desember þegar Foreldrafélag Hvaleyrarskóla stóð fyrir árlegum jólaföndurdegi. Foreldrar, börn, afar og ömmur nutu þess að föndra saman jólakskraut og gæða sér á heitu súkkulaði og vöfflum sem nemendur úr 8. bekkjum sáu um. (Myndir)

 

 

7.12.2011

Sóley Lind náði jafntefli gegn stórmeistaranum

Sóley Lind Pálsdóttir náði jafntefli gegn stórmeistaranum Friðriki Ólafssyni í fjölteflinu í Hörpu sl. laugardag. Þar tefldi Friðrik við þrettán af efnilegustu ungmennum landsins. Sóley Lind var á meðal fjögurra skákmanna sem náðu þeim árangri að gera jafntefli við stórmeistarann. Þess má geta að Friðrik sigraði í átta skákum og tapaði aðeins einni.

 

 

7.12.2011

Dagskrá í desember
Það líður senn að jólum og börnin farin að telja dagana fram að jólaleyfi. Upplýsingar um sérstaka viðburði
í desember má sjá með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.

 

2.12.2011

Tíu fræknir krakkar tefla við meistara Friðrik í Hörpu á morgun

Tíu krakkar á grunnskólaaldri tefla á morgun, laugardaginn 3. desember, við Friðrik Ólafsson fyrsta stórmeistara Íslendinga. Sóley Lind Pálsdóttir nemandi í 7. SHS í Hvaleyrarskóla er meðal þeirra 10 skákmeistara framtíðarinnar sem fá tækifæri til að að tefla við besta skákmann Íslandssögunnar. Fjölteflið fer fram í Hörpu og hefst kl. 13.

 

 

30.11.2011

Jólasmiðja ÍTH frá  21. desember til og með 3. janúar 2012

Ákveðið hefur verið í stað þess að vera með opið í jólafríinu í hverju frístundaheimili fyrir sig að hafa miðlæga opnun í frístundaheimilinu í Setbergsskóla sem er staðsett í íþróttahúsinu á 2. hæð. (Meira)

 

Eldri fréttir

 
   
Dagbók skólaárið 2010-2011 Dagbók skólaárið 2009-2010 Dagbók skólaárið 2008-2009

Dagbók skólaárið 2007 - 2008

Dagbók skólaárið 2006 - 2007

Dagbók skólaárið 2005 - 2006

 

Hvaleyrarskóli - Akurholt 1 - 220 Hafnarfjörður - Kt. 590169-7579 - Sími: 565 0200 - Fax: 565 2725 - Netfang: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is