|
Dagbók 27.3.2012 Páskabingó Páskabingó verður haldið í Hvaleyrarskóla fimmtudaginn 29. mars 2012 kl. 17.00-19.00 í hátíðarsal skólans. Sjá nánar með því að smella á auglýsinguna hér fyrir neðan.
22.3.2012 Innritun í grunnskóla
Innritun nemenda í fyrsta bekk, sem fæddir eru
árið 2006 verður í grunnskólum Hafnarfjarðar 26. - 30. mars klukkan 9:00 –
15:00. Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast á milli skólahverfa og
þeirra sem flytja í Hafnarfjörð fyrir næsta skólaár. Sérstök athygli er vakin á því að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í sjálfstætt reknum skólum eða grunnskólum annarra sveitarfélaga á næsta skólaári er til 1. maí sjá www.hafnarfjordur.is. Fræðslustjórinn í Hafnarfirði 21.3.2012 Gaflarakaffi í Lækjarskóla Starfshópur um skólaskipan var skipaður af fræðsluráði Hafnarfjarðar og hefur það verkefni að skoða hvort núverandi skólaskipan sé sú heppilegasta eða hvort fýsilegt sé að horfa til breytinga þar á. Þess vegna er nú efnt til málþings þar sem óskað er eftir aðkomu allra áhugasamra bæjarbúa að þessari mikilvægu vinnu. Gaflarakaffið verður haldið í Lækjarskóla laugardaginn 24. mars kl. 11-13. Við hvetjum foreldra í skólahverfinu okkar til að fjölmenna á Gaflarakaffið og taka þátt í að móta framtíðarsýn um skólaskipan í bænum okkar.
20.3.2012 Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk fór fram 13. mars í Hafnarborg. Fulltrúar okkar voru þær Helga Rún Sumarliðadóttir í 7. ÚHG og Blerina Shillova í 7. SHS og stóðu þær sig með mikilli prýði. Það var Margrét Hörn Jóhannsdóttir sem sigraði að þessu sinni og Alex Elí Schweitz Jakobsson varð í 2. sæti en þau eru bæði í Víðistaðaskóla. Í 3. sæti varð Margrét Stefánsdóttir úr Öldutúnsskóla. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn eins og öllum upplesurunum 16 sem eru í raun öll sigurvegarar. Þess má geta að Dzmitry Shamkuts í 7. ÚHG las upp ljóð á rússnesku af mikilli tilfinningu og vakti verðskuldaða athygli.
20.3.2012 Hvaleyrarskóli tók þátt í Skólahreysti Um þessar mundir taka grunnskólar landsins þátt í undankeppni Skólahreystis. Þann 8. mars sl. kepptu nemendur Hvaleyrarskóla og stóðu þeir sig með mikilli prýði. Það voru þau Hrund Hanna Hansdóttir (10. ÞH) og Orri Bergmann Valtýsson (10. MK) sem kepptu í hraðabrautinni. India Bríet Böðvarsdóttir (9. SB) keppti í hreystigreipi og armbeygjum. Oddur Jarl Haraldsson (10. MK) keppti í upphífingum og dýfum. Varamenn voru Úlfar Máni Úlfarsson (9. GB) og Helgi Severino Elíasson (10. ÞH). Lauk Hvaleyrarskóli keppni með 51 stig í 7. sæti af 15. Sigmundur Birgir Skúlason, íþróttakennari, þjálfaði liðið fyrir keppnina og var þeim til halds og trausts í keppninni. Þakkar Hvaleyrarskóli þeim kærlega fyrir mikinn dugnað og eljusemi.
19.3.2012 SMT skólaleikur - 100 miða leikurinn
Í dag, mánudaginn 19. mars, hófst SMT
skólaleikurinn okkar eða 100 miða leikurinn eins og hann er oftast nefndur. Á
hverjum degi fá tveir starfsmenn 5 sérmerkta hrósmiða hvor og eiga þeir að
veita nemendum þá fyrir góða hegðun. Þegar nemandi hefur fengið þennan
sérmerkta hvalamiða þá fer hann í afgreiðsluna og sýnir miðann og dregur
númer. Miðinn er síðan límdur á viðeigandi stað upp á SMT spjaldið sem á eru
100 númer. Ritari skráir hjá sér nafn og það númer sem nemandinn dregur.
Ritari sendir jafnframt tölvupóst til foreldra og lætur þá vita að þeirra barn
hafi fengið þennan sérstaka hrósmiða fyrir rétta og góða hegðun og sé þar með
orðinn þátttakandi í þessum leik.
Skólastjóri ákveður fyrirfram
hvaða röð verður vinningsröð og ákveður einnig hvað verður í umbun fyrir þá
sem eiga númerin í vinningsröð. Yfir þessu hvílir algjör leynd. Leikurinn
stendur yfir í 2 vikur eða 10 skóladaga og eftir það eru úrslit kynnt og
umbunin veitt í framhaldi. 100 miða leikurinn stendur yfir frá mánudeginum 19. mars til föstudagsins 30. mars.
19.3.2012 Vel heppnaðir þemadagar að baki Vel heppnuðum þemadögum í Hvaleyrarskóla lauk með opnu húsi síðastliðinn föstudag. Það voru fjölmargir foreldrar og aðrir gestir sem heimsóttu okkur á þessum góða degi. Nemendur seldu grímur, leirmuni, skartgripi, sultu og margt fleira sem þeir höfðu skapað á þemadögunum. Við þökkum foreldrum og öðrum velunnurum skólans kærlega fyrir þeirra framlag en það seldist varningur fyrir 230 þúsund krónur sem munu renna til UNICEF - Barnahjálpar sameinuðu þjóðanna. Margir höfðu á orði að þetta væru bestu þemadagarnir sem haldnir hafi verið í Hvaleyrarskóla. Hér fyrir neðan er hægt að skoða myndir og umfjöllun fjölmiðla um þemadagana.
16.3.2012 Opið hús í Hvaleyrarskóla Í dag, föstudaginn 16. mars, er foreldrum og öðrum velunnurum skólans boðið á opið hús þar sem afrakstur þemadaganna er til sýnis og sölu. Ágóðinn af sölunni rennur til UNICEF – Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Börnin hafa verið mjög áhugasöm og dugleg að framleiða ýmsan varning sem seldur verður á hóflegu verði. Nemendur í 10. bekk verða einnig með kaffisölu. (Myndir frá gærdeginum)
15.3.2012 Myndir frá þemadögum Hér gefur að líta myndir sem teknar voru í gær, miðvikudaginn 14. mars, víðsvegar um skólann af þemavinnu nemenda. (Myndir)
14.3.2012 Heimsálfan Afríka Í dag miðvikudaginn 14. mars hófust þemadagar hjá okkur í Hvaleyrarskóla. Í ár var farin sú nýstárlega leið að kennarar auglýstu laus störf í mismunandi smiðjum og gátu nemendur sótt um þau störf sem höfðuðu mest til þeirra. Vinnudagarnir eru tveir og síðan halda nemendur opið hús á föstudaginn 16. mars þar sem foreldrum og öðrum velunnurum skólans er boðið að koma og líta á afrakstur vinnunnar. Þar munu nemendur í 10. bekk selja kaffi, safa og meðlæti en jafnframt verður afrakstur þemadaganna boðinn til sölu og rennur ágóði sölunnar til styrktar börnum í Afríku í samvinnu við UNICEF.
8.3.2012 Skólahreysti Í kvöld keppir Hvaleyrarskóli í Skólahreysti en keppnin fer fram í íþróttahúsinu Austurbergi í Breiðholti. Keppnin stendur yfir frá kl. 19.00 til 20.45. Sætaferðir eru í boði fyrir stuðningsmenn og er brottför kl.18.00 frá Hvaleyrarskóla. Okkar stuðningsliði hefur verið úthlutaður liturinn brúnn, þannig að við reynum að finna eitthvað brúnt til að vera í. Í keppnisliði okkar eru Hrund Hanna Hansdóttir, Orri Bergmann Valtýsson, Indía Bríet Böðvarsdóttir, Oddur Jarl Haraldsson, Helgi Severino Elíasson og Úlfar Máni Úlfarsson. Sigmundur Birgir Skúlason íþróttakennari er þjálfari liðsins. Fjölmennum í Austurberg og styðjum okkar lið. Áfram Hvaleyrarskóli!
8.3.2012 Þemadagar í Hvaleyrarskóla Í
næstu viku, 14.-16. mars, verða þemadagar hjá okkur í Hvaleyrarskóla. Þessa
daga verður hefðbundin stundaskrá brotin upp og munu nemendur vinna í
aldursblönduðum hópum að fjölbreyttum verkefnum. Viðfangsefnið að þessu sinni
er heimsálfan AFRÍKA.
Nemendur mæta kl. 8.20 miðvikudag og fimmtudag og ljúka skóladeginum kl.
13.20 þessa daga. Föstudaginn 16. mars verður síðan opið hús í skólanum
frá kl. 10.00-12.00. Nánar má lesa um fyrirkomulag þemadagana í fréttabréfum
deildanna hér fyrir neðan.
23.2.2012 Vetrarfrí og skipulagsdagur Vetrarfrí verður í Hvaleyrarskóla fimmtudaginn 1. mars og föstudaginn 2. mars. Mánudagurinn 5. mars er síðan skipulagsdagur og verður engin kennsla þann dag. Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra ánægjulegra daga í vetrarfríinu.
22.2.2012 Mikið fjör á öskudegi Sannkölluð hátíðarstemmnig var í Hvaleyrarskóla í dag þegar nemendur og starfsmenn mættu í hinum ýmsu furðufötum í skólann. Unglingarnir gátu valið um að taka þátt í náttfatadiskói í Ásvallalaug eða horfa á kvikmynd í fyrirlestrarsal skólans. Grímuball var haldið fyrir 1.-7. bekk og stjórnaði Vilborg Sverrisdóttir því með sinni alkunnu snilld. (Myndir) 20.2.2012 Upplestrarhátíð Hvaleyrarskóla 2012 Upplestrarhátíð Hvaleyrarskóla var haldin fyrir fullum sal áhorfenda. Tíu nemendur kepptu um að taka þátt í Stóru Upplestrarhátíðinni í Hafnarborg fyrir hönd skólans þar sem nemendur úr öllum grunnskólum Hafnarfjarðar og Álftaness keppa. Keppendur lásu úr sögu Þórarins Leifssonar, Bókasafn ömmu Huldar og einnig sjálfvalið ljóð. Ýmis atriði voru flutt á milli umferða og voru það hæfileikaríkir nemendur úr 3. – 8. bekk sem það gerðu. Dómararnir voru miklir reynsluboltar í þessu fagi: Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, formaður fræðsluráðs, Marsibil Ólafsdóttir aðstoðarskólastjóri, Linda Helgadóttir kennari, Steindór Guðjónsson kennari og ekki síst guðmóðir upplestrarkeppninnar, Ingibjörg Einarsdóttir skrifstofustjóri Skólaskrifstofunnar. Þeir sem voru valdir sem bestu upplesararnir okkar voru: Blerina Shillova 7. SHS og Helga Rún Sumarliðadóttir 7. ÚHG. Breki Þór Þorgrímsson úr 7. ÚHG var svo valinn sem varamaður. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn. Nú tekur við æfingatímabil hjá þeim til 13. mars þegar Stóra Upplestrarhátíðin verður haldin í Hafnarborg og óskum við þeim góðs gengis. (Myndir) 20.2.2012 Öskudagur
Á öskudag er dagskrá í öllum deildum til kl.
11.00. Í mið- og yngri deild er öskudagsball á sal skólans og spil í
heimastofum. Í unglingadeild geta nemendur valið um að taka þátt í
náttfatapartíi í Ásvallalaug eða horfa á bíómynd í fyrirlestrarsal skólans.
Nemendur sem eru í mataráskrift fá
samlokur, drykk og ávöxt í lok dagskrár. Sjá nánar um skipulag öskudagsins
hér. Opið er í frístundaheimilinu Holtaseli fyrir þá nemendur sem eru skráðir þar.
Dagskrá á vegum ÍTH verður á Thorsplani frá kl. 13. Sjá nánar hér.
14.2.2012 Grunnskólahátíð Hafnarfjarðar Hin árlega Grunnskólahátíð Hafnarfjarðar verður haldin á morgun miðvikudaginn 15. febrúar, bæði í Gaflaraleikhúsinu þar sem leiksýningar fara fram og í íþróttahúsinu Strandgötu þar sem ballið verður haldið.
Hluti hátíðarinnar eru söng-/leikatriði frá nokkrum skólum og sérstök leiksýning, Áfram eða afturábak, sem sýnd er í tengslum við hátíðina. Leiksýningin er samstarfsverkefni grunnskólanna og Gaflaraleikhússins í samvinnu við hljómsveitina White signal og Listdansfélag Hafnarfjarðar. Áfram eða afturábak er leikstýrt af Björk Jakobsdóttur, leikkonu. Hún vann handritið í samráði við rúmlega 30 manna leikhóp sýningarinnar sem eru unglingar úr Lækjarskóla, Hvaleyrarskóla og Víðistaðaskóla. Leiksýningin er hluti af námi þeirra í vetur í leiklistarvali. Dagskráin í Gaflaraleikhúsinu, Strandgötu 50 (við hliðina á Víkingahótelinu) verður á miðvikudaginn sem hér segir:
Sérstök aukasýning verður á leikritinu Áfram
eða afturábak fimmtudaginn 16. febrúar kl. 20 í Gaflaraleikhúsinu. Hún er
hugsuð fyrir almenning eða alla sem vilja sjá afrakstur leiklistarvalsins í
vetur. Selt verður inn. Athygli er vakin á því að unglingarnir fá leyfi í skólanum eftir hádegi á morgun og einnig í fyrstu þremur kennslustundunum fimmtudaginn 16. febrúar.
Auglýsing um Grunnskólahátíðina frá nemendaráði.
30.1.2012 Lestrarátak í Hvaleyrarskóla Í dag hefst lestrarátak í Hvaleyrarskóla. Allar deildir skólans taka þátt lestrarátakinu sem stendur yfir frá 30. janúar – 29. febrúar 2012. (Meira)
27.1.2012 Ný heimasíða Foreldraráðs Hafnarfjarðar Foreldraráð Hafnarfjarðar er samráðsvettvangur og málsvari foreldra grunnskólabarna í Hafnarfirði. Ný heimasíða Foreldraráðs Hafnarfjarðar er nú komin í loftið en slóðin er http://foreldrarad.hafnarfjordur.is.
27.1.2012 Hvaleyrarskóli er opinn í dag Hvaleyrarskóli er opinn í dag. Klukkan 7.30 í morgun var búið að hreinsa aðkeyrsluna og bílastæðin við skólann.
Foreldrar eru
minntir á reglur um viðbrögð við óveðri en í þeim segir m.a: "Foreldrar
leggja sjálfir mat á hvort fylgja þarf barni í skóla þótt engin tilkynning
hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að
börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn
á slík tilvik sem eðlileg forföll. Hið sama gildir ef foreldrar lenda í
vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa."
Frá Veðurstofu:
Vaxandi suðaustanátt, 8-13 m/s og fer að snjóa kringum hádegi, en 13-18 og
slydda eða rigning síðdegis. Hægari og rigning á morgun. Hlýnar í dag og hiti
1 til 5 stig með kvöldinu. 26.1.2012 Framhaldsskólakynning Kynning á námsframboði framhaldsskólanna fyrir nemendur 10. bekkjar og foreldra þeirra fer fram í sal Flensborgarskóla í dag kl. 17.00-18.30.
Eftirfarandi framhaldsskólar verða með kynningarbás:
Foreldrar eru hvattir til að mæta
með börnum sínum. 26.1.2012 Vond færð í bænum Skafrenningur er nú á höfuðborgarsvæðinu og hefur verið síðustu klukkustundir. Lögreglan hefur varað fólk við að æða af stað á illa búnum farartækjum. Klukkan 8 í morgun var ekki búið að moka bílastæðin við skólann og mörg ökutæki föst í sköflum í hverfinu. Við hvetjum fólk því til að íhuga það vel áður en það heldur út í einhverja óvissu með börnin sín. Annars bendum við enn og aftur á eftirfarandi tengil um viðbrögð við óveðri.
20.1.2012 Ný gjaldskrá heilsdagsskólans Ný gjaldskrá fyrir heilsdagsskólann tekur gildi frá og með 1. febrúar nk.
19.1.2012 Foreldradagur
Miðvikudaginn 25. janúar 2012 eru nemendur og
foreldrar þeirra boðaðir til viðtals við umsjónarkennara. Kennsla samkvæmt
stundaskrá fellur niður þennan dag.
10.1.2012 Þegar veður er vont Að gefnu tilefni viljum við benda foreldrum á áætlun vegna röskunar á skólastarfi vegna óveðurs. Áætlunina má finna hér.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu þriðjudaginn 10. janúar 2012: Suðvestan og vestan 15-23 m/s og éljagangur. Lægir í nótt, fremur hæg vestanátt á morgun og lítilsháttar él. Frost 0 til 5 stig.
20.12.2011
16.12.2011 Samstarf við leikskólana á Holtinu Fyrir nokkru fengum við í heimsókn elstu börnin á leikskólunum Álfasteini og Vesturkoti. Fyrstu bekkirnir hjá okkur tóku á móti gestunum og sungu allir hóparnir nokkur lög saman. Á eftir fengu allir mandarínur og piparkökur. (Myndir)
Á mánudaginn komu síðan börn af leikskólanum Álfasteini með myndarlegt jólatré færandi hendi. Sögðu börnin að þau hefðu fundið það á leiksvæði Álfasteins en það hefði að vísu verið Stekkjarstaur sem hefði skilið það eftir þar. Leikskólinn Álfasteinn ætlar að halda sitt árlega jólaball að þessu sinni í sal Hvaleyrarskóla. (Myndir)
16.12.2011 Bóndi í heimsókn Berglind Hilmarsdóttir, bóndi frá Núpi undir Eyjafjöllum kom í skólann síðastliðinn miðvikudag og heimsótti sjöundu bekkinga. Hún sýndi þeim kvikmynd um helstu störfin sem unnin eru á bóndabæjunum auk þess sem aðföng og framleiðsla búanna var kynnt. Berglind ræddi einnig við nemendur um bústörfin og ýmislegt sem tengist þeim. Nemendur sem voru mjög áhugasamir spurðu margra spurninga og gaf hún sér góðan tíma til að svara þeim. (Myndir)
16.12.2011 Umferðarfræðsla fyrir 10. bekkinga Á miðvikudaginn heimsótti Berent Karl Hafsteinsson 10. bekkingana okkar og hélt fyrirlestur um slysahættur í umferðinni. Hann sagði nemendum frá alvarlegu mótorhjólaslysi sem hann lenti í vegna hraðaksturs og afleiðingum þess. Í slysinu hlaut hann fjölmörg beinbrot og var vart hugað líf. Berent Karl lýsti því á tilþrifamikinn hátt fyrir nemendum hvernig líf hans hefur markast af þessum örfáu augnablikum á unglingsárum. Í lokin sýndi hann nemendum gervifætur sem hann notast við. Nemendur hlustuðu af mikilli athygli á frásögn Berents Karls og munu örugglega taka mikið mark á hans boðskap. (Myndir)
13.12.2011 Barátta gegn munntóbaki Tónlistarmaðurinn Jón Ragnar Jónsson heimsótti 8. bekkinga í síðustu viku og ræddi við þá um skaðsemi munntóbaks. Heimsóknin var í boði Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar. Jón Ragnar náði mjög vel til nemendanna og er greinilega góð fyrirmynd fyrir unga fólkið okkar. (Myndir)
13.12.2011 Jólaföndur Foreldrafélags Hvaleyrarskóla Það var sannkölluð jólastemning laugardaginn 3. desember þegar Foreldrafélag Hvaleyrarskóla stóð fyrir árlegum jólaföndurdegi. Foreldrar, börn, afar og ömmur nutu þess að föndra saman jólakskraut og gæða sér á heitu súkkulaði og vöfflum sem nemendur úr 8. bekkjum sáu um. (Myndir)
7.12.2011 Sóley Lind náði jafntefli gegn stórmeistaranum Sóley Lind Pálsdóttir náði jafntefli gegn stórmeistaranum Friðriki Ólafssyni í fjölteflinu í Hörpu sl. laugardag. Þar tefldi Friðrik við þrettán af efnilegustu ungmennum landsins. Sóley Lind var á meðal fjögurra skákmanna sem náðu þeim árangri að gera jafntefli við stórmeistarann. Þess má geta að Friðrik sigraði í átta skákum og tapaði aðeins einni.
7.12.2011
Dagskrá í desember
2.12.2011 Tíu fræknir krakkar tefla við meistara Friðrik í Hörpu á morgun Tíu krakkar á grunnskólaaldri tefla á morgun, laugardaginn 3. desember, við Friðrik Ólafsson fyrsta stórmeistara Íslendinga. Sóley Lind Pálsdóttir nemandi í 7. SHS í Hvaleyrarskóla er meðal þeirra 10 skákmeistara framtíðarinnar sem fá tækifæri til að að tefla við besta skákmann Íslandssögunnar. Fjölteflið fer fram í Hörpu og hefst kl. 13.
30.11.2011 Jólasmiðja ÍTH frá 21. desember til og með 3. janúar 2012 Ákveðið hefur verið í stað þess að vera með opið í jólafríinu í hverju frístundaheimili fyrir sig að hafa miðlæga opnun í frístundaheimilinu í Setbergsskóla sem er staðsett í íþróttahúsinu á 2. hæð. (Meira)
29.11.2011 Jólaföndur Foreldrafélags Hvaleyrarskóla Laugardaginn 3. desember nk. verður jólaföndur í Hvaleyrarskóla frá kl. 11 – 14. Seldar verða föndurpakkningar á 500 kr. Límbyssur, málning og penslar verða á staðnum.
Vöfflu- og kaffisala verður á staðnum í umsjón 8. bekkjanna. Öll fjölskyldan velkomin, mömmur, pabbar, systkini, afar og ömmur, frænkur og frændur og vinir.
Hlökkum til að sjá ykkur J Jólakveðja, Foreldrafélag Hvaleyrarskóla.
25.11.2011 Slökkviliðið í heimsókn Í gær komu slökkviliðsmenn í heimsókn í 3. bekki í tilefni af árlegri eldvarnarviku. Þeir ræddu við nemendur og fræddu þá um eldvarnir heimilisins. Að því loknu fengu nemendur að fara út og skoða slökkvibíl og sjúkrabíl. (Myndir)
22.11.2011 Fjórði bekkur heimsótti leikskólana á Holtinu Fjórði bekkur heimsótti leikskólana á Holtinu í tilefni af Degi íslenskrar tungu sl. miðvikudag. Ásamt Hildi Loftsdóttur umsjónarkennara slógust í för Ragnheiður Anna Georgsdóttir umsjónarkennari 1. bekkjar sem spilaði undir söng á gítarinn sinn, Marsibil Ólafsdóttir aðstoðarskólastjóri og Helgi Arnarson skólastjóri. Fjórðu bekkingar sýndu bæði leik- og tónlistaratriði og að lokum þökkuðu leikskólabörnin fyrir heimsóknina með því að syngja Á íslensku má alltaf finna svar fyrir grunnskólabörnin. Við þökkum starfsfólki og nemendum á Álfasteini, Vesturkoti og Smáralundi fyrir góðar móttökur. (Myndir)
18.11.2011 Hátíðarsamvera í tilefni af Degi íslenskrar tungu Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur á sal á samveru miðdeildar miðvikudaginn 16. nóvember. Á þessum degi er Stóra upplestrarkeppnin sett og æfingartímabil 7. bekkinga hafið. Í tilefni af því fengum við sigurvegara keppninnar í fyrra, hann Róbert Elís Villalobos úr 8. bekk, til að lesa texta eftir hafnfirska barnabókahöfundinn, Guðrúnu Helgadóttur. Tvær stúlkur úr 7. bekk sungu tvö lög eftir þær sjálfar, annað var um Jónas Hallgrímsson og hitt var Vögguvísa. Tveir drengir komu fram og röppuðu lag við texta Jónasar; Buxur, vesti, brók og skór…. og sýndu fram á að íslenskan er endurnýtanleg og nothæf til margs. Við þökkum þessum nemendum okkar vel fyrir þeirra framlag við að setja hátíðisblæ á þennan dag. Í lok dagskrár var síðan tilkynnt hver hefði fengið verðlaun fyrir besta íslenska orðið í stað „að chilla“. Verðlaunahafinn var Helga Rún Sumarliðadóttir í 7. ÚHG sem kom með orðið „að dúsa“ dregið af orðinu að vera dús, að vingast við og að gefa dúsu. Hún fær verðlaun frá Hróa Hetti, skyndibitastað með íslensku nafni, flatbökuveislu fyrir fjóra. (Myndir)
15.11.2011 Skipulagsdagur á fimmtudag Fimmtudagurinn 17. nóvember er skipulagsdagur í Hvaleyrarskóla og því fellur öll kennsla niður þann dag.
15.11.2011
Dagur íslenskrar tungu
15.11.2011 Dagur gegn einelti Eins og áður hefur komið fram var 8. nóvember tileinkaður baráttunni gegn einelti. Eineltisteymi skólans skipulagði dagskrána hjá okkur í Hvaleyrarskóla. Dagurinn hófst með samveru í unglingadeild þar sem teymið kynnti markmið með Degi gegn einelti, sem nú var haldinn í fyrsta sinn. Þá var myndband og lagið Sonur, eftir Magnús Þór Sigmundsson sýnt, í fallegum flutningi Páls Rósinkranz. Umsjónarkennarar fjölluðu svo um einelti í öllum bekkjum og afhentu nemendum armbönd með slagorði dagsins; „Jákvæð samskipti”. Armböndin gaf Mennta- og menningarmálaráðuneytið öllum nemendum og starfsmönnum skólans. Dagurinn heppnaðist vel og var ánægjuleg áminning um að við megum aldrei sofna á verðinum í baráttunni gegn einelti. (Myndir)
10.11.2011 Samkeppni um nýtt íslenskt orð Í tilefni af degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, höfum við í Hvaleyrarskóla ákveðið að hafa samkeppni um nýtt íslenskt orð í stað sagnarinnar „að chilla". Þetta ágæta enskættaða orð er mikið notað í okkar samfélagi og væri gaman að fá tillögur að íslensku orði frá ykkur kæru foreldrar og nemendur. Vegleg verðlaun verða veitt á samveru miðdeildar, 16. nóvember. Síðustu skil á tillögum eru 15. nóvember.
9.11.2011 Með nesti og nýja skó Í síðustu viku fengum við í heimsókn á samveru yngri deildar rithöfundinn Ragnheiði Gestsdóttur ásamt dóttur hennar, leikkonunni Kolbrúnu Önnu Björnsdóttur. Þær Ragnheiður og Kolbrún sögðu börnunum söguna af Velvakanda og bræðrum hans og tóku börnin virkan þátt í frásögninni. Foreldrafélagið styrkir heimsóknir skálda í skólann okkar og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. (Myndir)
9.11.2011 Fíesta Ein aðalskemmtun unglingadeildar, Fíestan, verður haldin í dag miðvikudaginn 9. nóvember. Fíestan er samstarfsverkefni félagsmiðstöðvarinnar Versins og Hvaleyrarskóla ásamt félagsmiðstöðinni Vitanum og Lækjarskóla. Hátíðin hefst á borðhaldi kl. 18.00 í hátíðarsal skólans. Að loknu borðhaldi verður dansleikur sem að þessu sinni verður haldinn í Lækjarskóla. Fram koma: Emmsjé Gauti, Erpur Eyvindarson og DJ Jónas Óli. Matur á Fíestu hefur í gegnum tíðina verið af mexíkóskum uppruna og mun Skólamatur sjá um matreiðsluna nú. Ballið stendur yfir til kl. 23.00. Verð fyrir matinn og ballið er 2800 krónur.
Farið verður með rútum frá Hvaleyrskóla til Lækjarskóla að loknu borðhaldi kl. 19.30 og aftur heim að loknum dansleik kl. 23.00.
Ætlast er til að nemendur mæti prúðbúnir á hátíðina. Nemendur unglingadeildar fá leyfi í fyrstu 3 kennslustundunum fimmtudaginn 10. nóv.
1.11.2011 Dagur gegn einelti - 8. nóvember 2011 Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa fyrir degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af fulltrúum fjármálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis og er hún skipuð í kjölfarið á útgáfu Greinargerðar um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum sem kom út í júní 2010. Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti. Forsætisráðherra er verndari átaksins og munu velferðarráðherra, fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra undirrita sáttmálann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Ennfremur er fjöldi félaga og samtaka aðilar að samningnum. Við í Hvaleyrarskóla verðum með dagskrá hér í skólanum þennan dag sem helguð verður baráttunni gegn einelti.
1.11.2011 Notum endurskinsmerki Nú þegar svartasta skammdegið fer að skella á viljum við minna á mikilvægi þess að nemendur noti endurskinsmerki. Foreldrar eru því hvattir til að setja endurskinsmerki á fatnað barna sinna sem oft eru dökkklædd á ferð sinni í skólann.
31.10.2011 SMT skólaleikur - 100 miða leikurinn
Í dag, mánudaginn 31. október, hófst SMT
skólaleikurinn okkar eða 100 miða leikurinn eins og hann er oftast nefndur. Á
hverjum degi fá tveir starfsmenn 5 sérmerkta hrósmiða hvor og eiga þeir að
veita nemendum þá fyrir góða hegðun. Þegar nemandi hefur fengið þennan
sérmerkta hvalamiða þá fer hann í afgreiðsluna og sýnir miðann og dregur
númer. Miðinn er síðan límdur á viðeigandi stað upp á SMT spjaldið sem á eru
100 númer. Ritari skráir hjá sér nafn og það númer sem nemandinn dregur.
Ritari sendir jafnframt tölvupóst til foreldra og lætur þá vita að þeirra barn
hafi fengið þennan sérstaka hrósmiða fyrir rétta og góða hegðun og sé þar með
orðinn þátttakandi í þessum leik.
Skólastjóri ákveður fyrirfram
hvaða röð verður vinningsröð og ákveður einnig hvað verður í umbun fyrir þá
sem eiga númerin í vinningsröð. Yfir þessu hvílir algjör leynd. Leikurinn
stendur yfir í 2 vikur eða 10 skóladaga og eftir það eru úrslit kynnt og
umbunin veitt í framhaldi. 100 miða leikurinn stendur yfir frá mánudeginum 31. október til föstudagsins 11. nóvember. Vinningsröðin verður kynnt mánudaginn 14. nóvember.
17.10.2011
Vetrarfrí
12.10.2011
Vinavika í Hvaleyrarskóla
10.10.2011
Ljóðrænn óður til Hafnarfjarðar
28.9.2011
Foreldra- og nemendaviðtöl
28.9.2011 Tækni-LEGO námskeið í Hvaleyrarskóla Tækni-LEGO námskeið verður haldið í Hvaleyrarskóla fyrir 1.-8. bekk í október, þrjú skipti 1,5 klst. í senn. Nánari upplýsingar um námskeiðið.
23.9.2011 Skipulagsdagur Þriðjudagurinn 27. september er skipulagsdagur í Hvaleyrarskóla samkvæmt skóladagatali. Öll kennsla fellur niður þann dag.
22.09.2011 Íþróttamót grunnskólanna í Hafnarfirði fór fram í gær 21.september 2011. Þar kepptu allir 9.bekkingar í grunnskólum Hafnarfjarðar í hinum ýmsu hefðbundnu og óhefðbundnu íþróttagreinum. Nemendur Hvaleyrarskóla stóðu sig frábærlega í mótinu og höfnuðu í öðru sæti með samtals 34 stig. Sigur vannst m.a. í handboltamótinu og fengu nemendur okkar bikar til eignar. Öldutúnsskóli sigraði að þessu sinni og óskum við þeim innilega til hamingju. (Myndir)
19.09.2011
19.09.2011
Æskilegur útbúnaður nemenda: 1. og 2. bekkur: Nemendur eru í léttum íþróttafatnaði í íþróttakennslu. Þau mega hvort heldur sem er vera berfætt eða í tátiljum/stjörnusokkum en ekki er æskilegt að vera í íþróttaskóm.
3. og 4. bekkur: Nemendur eru í léttum íþróttafatnaði í íþróttakennslu. Æskilegt er að nemendur séu í íþróttaskóm í íþróttum.
5. - 10. bekkur: Nemendur eru í léttum íþróttafatnaði í íþróttakennslu. Einnig er ætlast til þess að nemendur séu í innanhússíþróttaskóm. Nemendur ganga í íþróttir og sund.
16.09.2011
Þátttakendum námskeiðsins var öllum boðið upp á dýrindis súpu sem Sæunn Anna Stefánsdóttir og Arnfríður I. Ingólfsdóttir matreiddu.
Eftir matinn kynnti Gísli Guðlaugsson formaður foreldrafélagsins foreldrastarfið. Þar á eftir flutti Hjördís Jónsdóttir teymisstjóri í SMT erindi um Jákvæða skólafærni. Sigmundur Birgir Skúlason íþróttakennari rak síðan lestina og fór yfir fyrirkomulag íþrótta- og sundkennslunnar.
Í lok námskeiðsins afhenti Helgi Arnarson skólastjóri síðan öllum foreldrum viðurkenningarskjal fyrir góða þátttöku. (Myndir)
16.9.2011
Nemendur eru minntir á að koma með öll nauðsynleg gögn s.s. pennaveski og hollt nesti. Við bendum foreldrum jafnframt á mikilvægi svefns, góðrar hvíldar og næringar fyrir börnin. Nánar um samræmd könnunarpróf á www.namsmat.is.
15.9.2011 Síðari hluti skólafærninámskeiðs fyrir foreldra nemenda í 1. bekk verður haldinn í fyrirlestrarsal Hvaleyrarskóla í dag fimmtudaginn 15. september 2010. Námskeiðið hefst kl. 18 og lýkur kl. 20.30. Á dagskrá námskeiðsins eru m.a. fyrirlestrar, kynningar og leikir. (Meira)
15.9.2011 Nemendur í 6. bekkjum í Hvaleyrarskóla taka þátt í hreinsunarátaki Hraunvina í hrauninu sunnan og vestan við Straumsvík á Degi íslenskrar náttúru, 16. september. Skólarnir næst hrauninu taka þátt í þessu verðuga verkefni, þ.e.a.s. Hvaleyrarskóli, Hraunvallaskóli og Áslandsskóli. Farið verðum með rútu frá skólanum kl. 9.00 og til baka kl. 11.30. Mikilvægt er að nemendur komi klæddir eftir veðri og með góða vettlinga.
14.9.2011 Það ríkti góður andi á SMT hátíðinni sem var haldin í skólanum okkar í gærmorgun. Hátíðin fór fram utandyra í blíðskaparveðri. Eftir að skólastjóri hafði sett hátíðina og farið yfir tilefni hennar tók Ingó við og náði frábærri stemningu eins og honum er lagið. Þar á eftir færðu þær Margrét Sigmarsdóttir og Elísa Ingólfsdóttir forsvarskonur PMT foreldrafærni skólanum okkar SMT fánann til merkis um vel heppnaða innleiðingu SMT. Allir nemendur skólans fengu ís í boði Kjörís og að lokum var glæsilegur SMT fáninn dreginn að húni. Hvaleyrarskóli er þar með orðinn sjálfstæður SMT skóli. (Myndir)
12.9.2011
Á morgun, þriðjudaginn 13. september, fær Hvaleyrarskóli afhentan SMT fánann
til merkis um að formlegu innleiðingarferli SMT-skólafærni sé lokið.
Tímamótunum verður fagnað með hátíð í skólanum sem hefst kl. 10.00 og lýkur
kl. 11.20. Hátíðin verður haldin utandyra ef veður leyfir. Við eigum m.a. von
á góðum gesti í heimsókn sem mun halda uppi stuðinu. Þá verður SMT fáninn
dreginn að húni. Foreldrar og aðrir velunnarar skólans eru velkomnir að fagna
með okkur.
7.9.2011
Þess má geta að hinn 10. bekkurinn, 10. ÞH, tekur þátt í öðru norrænu samstarfsverkefni og mun taka á móti vinabekk frá Eistlandi í október nk.
5.9.2011 Foreldrar og börn þeirra þurfa að gera sér það ljóst að foreldrar hafa fullan rétt til að stytta þennan útivistartíma, taka þarf mið af aðstæðum hverju sinni og foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum og unglingum. Æskilegt er að allir standi saman, framfylgja þarf reglunum og því að börnin þurfa sannarlega sína hvíld, gott er að auka þann tíma sem fjölskyldan eyðir saman og svo þarf að stunda heimalærdóm. Þátttaka foreldra í foreldrarölti hefur stutt við að útivistartíma sé framfylgt auk þess sem það að foreldrar hittast gefur þeim tækifæri til að standa enn betur saman í því að huga að velferð barna sinna. Geir Bjarnason forvarnafulltrúi. 24.8.2011 Hjólabretti, hlaupahjól, reiðhjól og línuskautar Í Hvaleyrarskóla er ekki aðstaða á leikvellinum til að vera á hjólum auk þess sem það eykur verulega hættu á slysum. Þess vegna er það í reglum skólans að við leyfum engin leiktæki á hjólum á leikvöllum skólans.
Sú regla gildir að nemendur í 1. og 2. bekk koma ekki á hjólum í skólann. Eldri nemendur sem koma á hjólum í skólann fari eftir þeim reglum sem gilda um hjól, þ.e. varðandi allan öryggisbúnað. Ef eldri nemendur kjósa að koma á hjóli í skólann eru þau geymd í sérstökum hjólagrindum og taka nemendur sjálfir ábyrgð á hjólum sínum. Í skólanum er engin aðstaða til að geyma hjólabretti og þess háttar tæki fyrir nemendur. Eru það því vinsamleg tilmæli að nemendur skilji þau eftir heima. . 22.8.2011 Útiíþróttir Skólaíþróttir fara fram utandyra dagana 24. ágúst til 16. september. Ætlast er til þess að nemendur séu klæddir eftir veðri og í góðum skófatnaði. Skólaíþróttir færast inn mánudaginn 19. september.
16.8.2011 Ritfangalistar Ritfangalistar fyrir skólaárið 2011-2012 eru tilbúnir.
15.8.2011 Frístundaheimili - heilsdagsskólar Kæru foreldrar / forráðamenn. Í sumar var formlega afgreitt að frístundaheimili/heilsdagsskólar sem hafa verið á forræði Skólaskrifstofu flytjist yfir til Skrifstofu æskulýðsmála og heyra nú undir Íþrótta- og tómstundanefnd. (Lesa meira)
9.8.2011 Kennari í náttúrufræði Við
auglýsum eftir náttúrufræðikennara fyrir unglingastig. Um er að ræða 100%
stöðu. Umsækjandi þarf að hafa grunnskólakennararéttindi og sérmenntun og/eða
reynslu á sviði náttúruvísinda.
9.8.2011 Nemendur úr Hvaleyrarskóla gera það gott í sumar Kristján Flóki Finnbogason og Þórður Jón Jóhannesson sem útskrifuðust frá Hvaleyrarskóla sl. vor urðu Norðurlandameistarar í knattspyrnu um liðna helgi. Íslenska landsliðið skipað leikmönnum 17 ára og yngri tryggði sér Norðurlandameistaratiltilinn með sigri á Dönum í úrslitaleik með einu marki gegn engu. Á myndinni er Þórður Jón lengst til vinstri í efri röð og Kristján Flóki annar frá hægri í sömu röð.
Fleiri afreksmenn voru í eldlínunni um helgina því Birgir Björn Magnússon nemandi í 9. bekk sigraði örugglega í strákaflokki á Íslandsmóti unglinga í golfi sem lauk á Grafarholtsvelli í gær. Birgir Björn sem keppti í drengjaflokki 14 ára og yngri varð Íslandsmeistari í sínum flokki með miklum yfirburðum eða á samtals níu höggum undir pari, 18 höggum á undan næsta manni. Birgir Björn lék jafnframt þriðja og síðasta hringinn í dag á 64 höggum og setti vallarmet af rauðum teigum.
Við óskum þessum íþróttamönnum okkar til hamingju með þennan glæsilega árangur.
4.8.2011 Skólasetning
Skólasetning
í Hvaleyrarskóla fer fram þriðjudaginn 23. ágúst.
Foreldrar eru hvattir til þess að koma með börnum sínum. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 24. ágúst nema hjá 1. bekk, þar verða foreldraviðtöl. Ritfangalistar verða birtir hér á vef skólans miðvikudaginn 17. ágúst.
4.8.2011 Skrifstofa Hvaleyrarskóla Skrifstofa Hvaleyrarskóla opnar að loknu sumarleyfi mánudaginn 8. ágúst.
22.6.2011 Viðurkenning fræðsluráðs Hafnarfjarðar 2011 Hvaleyrarskóli hlaut á dögunum viðurkenningu fræðsluráðs Hafnarfjarðar 2011 ásamt þremur stærðfræðikennurum á unglingastigi fyrir hvetjandi og árangursríka stærðfræðikennslu. Stærðfræðikennarar á unglingastigi (8.-10. bekk) í Hvaleyrarskóla fá viðurkenningu fyrir skýr og fagleg vinnubrögð. Það hefur einkum birst í verkefnavali og tengslum við daglegt líf nemenda, reglulegu símati, endurgjöf til nemenda og ánægju foreldra með fyrirkomulag stærðfræðikennslunnar og samstarf við heimilin. Þá er bent á ágætan árangur nemenda skólans í stærðfræði sem birtist utan skólans, s.s. að af þeim 30 nemendum úr 8.-10. bekkjum grunnskólanna í Hafnarfirði sem hlutu viðurkenningu í Stærðfræðikeppni grunnskólanna hjá Flensborgarskóla fyrir stuttu voru 10 nemendur frá Hvaleyrarskóla. Þetta eru stærðfræðikennararnir Gunnur Baldursdóttir, Hildur Loftsdóttir og Sigríður Bárðardóttir. Tilnefningaraðili segir um þá: „Þessir kennarar hafa verið einstaklega duglegir að sækja margvísleg stærðfræðinámskeið og kynnt sér vel nýjungar í faginu. Í góðu samstarfi við heimilin þá hafa tilnefndir kennarar náð upp talsverðum metnaði og áhuga fyrir stærðfræði meðal nemenda og hafa til þess nýtt margvísleg lifandi heimaverkefni sem snerta daglegt líf. Tilnefndir kennarar eru til fyrirmyndar hvað varðar það að vekja lærdómsneistann hjá nemendum og flétta námsefnið við daglegt líf“.
Sigríður, Hildur og Gunnur með viðurkenningu fræðsluráðs.
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||