|
Dagbók 6.6.2011 Skólaslit og útskrift 10. bekkinga Hvaleyrarskóla var slitið í 21. sinn miðvikudaginn 3. júní síðastliðinn. Skólaslitin fóru fram með hefðbundnum hætti í 1.-9. bekkjum. Byrjað var á að koma saman á sal skólans þar sem var stutt en hátíðleg athöfn. Að henni lokinni var farið inn í bekkjarstofur þar sem nemendur fengu afhentan vitnisburð og kvöddu kennara og bekkjarfélaga áður en þeir héldu út í sumarið. (Myndir)
Seinna um daginn var útskriftaratöfn 10. bekkja sem fór fram í sal Flensborgarskóla líkt og undanfarin ár. Á dagskrá voru m.a. tónlistaratriði, upplestur og ræður skólastjóra, gesta og fulltrúa nemenda. Það voru prúðbúnir og glaðir nemendur sem tóku við útskriftarskírteinunum sínum að lokinni 10 ára grunnskólagöngu sinni. Veitt voru verðlaun og viðurkenningar af ýmsum toga og að útskrift lokinni var veglegt kaffihlaðborð í boði skólans. Um leið og við þökkum nýútskrifuðum nemendum okkar fyrir samfylgdina þá óskum við þeim velfarnaðar í þeim margvíslegu verkefnum sem bíða þeirra í framtíðinni. (Myndir)
31.5.2011 Skólaslit
Skólaslit
Hvaleyrarskóla verða haldin í sal skólans föstudaginn 3. júní. Foreldrar og
forráðamenn eru hjartanlega velkomnir með börnum sínum. Kl. 12.00 8. - 9. bekkir Útskrift 10. bekkinga fer fram í sal Flensborgarskólans sama dag kl. 17.00.
31.5.2011 Söngurinn ómar á Björtum dögum
Menningarhátíðin Bjartir dagar var
sett í morgun á Thorsplani. Það hefur verið árlegur viðburður síðustu ár að 4.
bekkingar í grunnskólum bæjarins opni Bjarta daga. Hátíðin er venjulega haldin
í tengslum við afmælisdag bæjarins sem er 1. júní en í ár var ákveðið að setja
hana formlega þriðjudaginn 31. maí. Á myndinni má sjá nemendur í 4. bekk
Hvaleyrarskóla fylgjast af athygli með atriði úr
leikritinu um Fúsa
froskagleypi sem Leikfélag Hafnarfjarðar setur upp í ár.
31.5.2011 Vorferð 2. bekkja til Þingvalla Aðrir bekkir fóru saman í vorferðalag til Þingvalla síðastliðinn föstudag. Einar Sæmundsen tók vel á móti okkur í fræðslumiðstöðinni og sýndi okkur mynd um lífið í Þingvallavatni. Síðan gengum við sem leið lá niður Almannagjá og hann sýndi okkur Lögberg og helli nokkurn sem kallaður er sönghellir. Þar tókum við lagið og þá tókum við eftir því að gæs ein sem sat efst á klettabrúninni brast í „söng“ með okkur. Síðan gengum við niður að Flosagjá og skoðuðum okkur um þar. Að lokum fengum við okkur nesti og fórum í leiki. Veðrið var fínt, milt og gott. Síðan var lagt af stað heim á leið og allir voru saddir og glaðir. Við þökkum Einari Sæmundsen kærlega fyrir frábæra leiðsögn. (Myndir)
27.5.2011 Tilnefning til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla Hvaleyrarskóli hlaut tilnefningu til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla árið 2011 fyrir góðan árangur í kennslu stærðfræði. Stærðfræðikennurum á unglingastigi, Gunni Baldursdóttur, Hildi Loftsdóttur og Sigríði Bárðardóttur, sem hlutu tilnefninguna voru veitt viðurkenning við hátíðlega athöfn sem haldin var í Þjóðmenningarhúsinu sl. þriðjudag.
Þess skal getið að Vinaverkefnið í Skagafirði hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2011.
27.5.2011 Aðalfundur Foreldrafélags Hvaleyrarskóla Síðastliðið mánudagskvöld var aðalfundur Foreldrafélags Hvaleyrarskóla. Á fundinum voru gerðar breytingar á stjórn en nokkrir stjórnarmenn gáfu ekki kost á sér. En eftir kosningu er foreldrafélagið þannig skipað:
Hægt er að lesa fundargerð aðalfundar undir foreldrafélag fundargerðir. Foreldrafélagið þakkar fráfarandi stjórnarmönnum kærlega fyrir þeirra framlag.
24.5.2011 Myndir frá vorhátíð Hvaleyrarskóla Vorhátíð Hvaleyrarskóla var haldin sl. föstudag. Tókst hún í alla staði mjög vel og skemmtu nemendur sér konunglega. Myndirnar tala sínu máli.
24.5.2011 Sumarvefur ÍTH Nokkrar fyrirspurnir hafa borist til skólanna um sumarstarfið á vegum ÍTH. Allar upplýsingar um sumarstarfið er að finna á vefnum www.sumarvefur.ith.is, hvort sem það eru upplýsingar um vinnuskólann hjá unglingunum, íþrótta- og leikjanámskeið, skólagarða, gæsluvelli eða námskeið íþrótta- og æskulýðsfélaga. Einnig er þar að finna upplýsingar um sundstaði, menningu og útivistarsvæði í Hafnarfirði.
24.5.2011 Loftgæði vöktuð Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu hafa verið misjöfn síðan aska tók að berast frá gosinu í Grímsvötnum aðfararnótt 23. maí. Þá voru mæligildi svifryks há. Reikna má með að mæligildin komi til með að sveiflast áfram. Öskufall á höfuðborgarsvæðinu var samt ekkert í líkingu við það sem hefur verið fyrir austan fjall og á Suðurlandi. Mælingar hafa sýnt hátt svifryk í lofti á höfuðborgarsvæðinu á álagstímum í umferðinni, þegar vindur er sterkur og jörð þurr. Er þar að einhverju leyti á ferðinni gosaska sem þyrlast upp.
Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa í varúðarskyni virkjað viðbragðsáætlanir sínar í samræmi við verklag sem viðhaft var í tengslum við gosið í Eyjafjallajökli. Veðurstofa Íslands spáir áfram norðlægum áttum sem að öllum líkindum ná að halda gosösku frá höfuðborgarsvæðinu. Engu að síður er full ástæða til að tryggja viðeigandi vöktun og undirbúning vegna eldgossins. Munu heilbrigðiseftirlit á höfuðborgarsvæðinu öllu fylgjast náið með loftgæðum og vatnsbólum borgarinnar allan sólarhringinn. Verða sendar út viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.
Fundir hafa farið fram þar sem fulltrúar sveitarfélaganna og viðbragðsaðila hafa rætt hugsanleg áhrif eldgossins. Yfirvöld fylgjast náið með gangi mála og vakta loftgæði á nákvæman og áreiðanlegan hátt. Verða allar fréttir af breytingum á loftgæðum sendar út jafnóðum á vefsvæði bæjarins.
Ólíklegt er talið að vatnsból spillist jafnvel þótt aska berist yfir svæðið enda er neysluvatnið fengið af allnokkru dýpi úr miklum grunnvatnsstraumum.
Íbúar eru hvattir til fylgjast vel með fréttum og kynna sér ennfremur upplýsingar og leiðbeiningar á heimasíðu Almannavarna, www.almannavarnir.is og á heimasíðu umhverfisstofnunar www.ust.is.
20.5.2011 Skipulagsdagur Mánudagurinn 23. maí er skipulagsdagur í Hvaleyrarskóla og verður því engin kennsla þann dag.
19.5.2011 Árshátíð unglingadeildar og Versins Árshátíð unglingadeildar Hvaleyrarskóla og félagsmiðstöðvarinnar Versins var haldin í síðustu viku. Tókst hún mjög vel og skemmtu unglingarnir okkar sér konunglega. (Myndir)
18.5.2011 Velkomin í danstíma
Dagana 19. og 20. maí bjóða nemendur í 1., 3. og
5. bekkjum foreldrum í danstíma. Nemendur munu sýna dansa sem þau hafa verið
að læra. Foreldrar mæta í danstíma hvers bekkjar. Sjá stundaskrá nemenda. Vilborg danskennari og nemendur.
17.5.2011 Vorhátíð Hvaleyrarskóla Vorhátíð Hvaleyrarskóla verður haldin föstudaginn 20. maí kl. 13.30-15.30. Boðið verður upp á fjölbreytt skemmtiatriði, grillaðar pylsur, popp, andlitsmálningu, fjöltefli, hoppkastala og margt fleira. (Nánar) Við hvetjum foreldra, systkini, afa og ömmur og aðra íbúa á Holtinu til að koma og gera sér glaðan dag með okkur.
Foreldrafélag Hvaleyrarskóla Félagsmiðstöðin Verið Hvaleyrarskóli
17.5.2011 Aðalfundur Foreldrafélags Hvaleyrarskóla Stjórn foreldrafélags Hvaleyrarskóla boðar til aðalfundar mánudaginn 23. maí kl 20:00 í hátíðarsal skólans. Um leið eru allir foreldrar hvattir til að taka virkan þátt í skólastarfinu og hafa þannig mótandi áhrif á skólann okkar. Gott foreldrasamstarf er mikil auðlind í öllu skólastarfi og óhætt að segja að alltaf er nóg af skemmtilegum og fjölbreyttum verkefnum sem stuðla að aukinni velferð nemenda. (Nánar)
16.5.2011 Vorskipulag í miðdeild Skólastarfið í maí er brotið upp með ýmsum hætti. Nemendur taka nokkur próf og einnig eru ýmsir viðburðir á dagskrá. Hér gefur að líta skipulagið hjá 6. og 7. bekk.
13.5.2011 Nýsköpunarkeppni grunnskólanna Nú fer senn að líða að skilafresti hugmynda í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Í þessari viku og þeirri síðustu var keppnin kynnt sérstaklega í 5., 6. og 7. bekk hér í Hvaleyrarskóla. Foreldrar og nemendur eru eindregið hvattir til að kynna sér þessa keppni en hún er opin öllum nemendum frá 1. – 10. bekk grunnskólans. Nánari upplýsingar fást á heimasíðu keppninnar www.nkg.is og hjá Úlfhildi Guðbjartsdóttur kennara á netfanginu ulla@hvaleyrarskoli.is.
Hvetjum við alla til að taka þátt, en þess má geta að við hér í Hvaleyrarskóla höfum oftar en ekki átt vinningshafa í keppninni.
11.5.2011 Vorskipulag í unglingadeild Nemendur í unglingadeild þreyta nokkur próf í maímánuði, en einnig eru ýmsir viðburðir og vorferðir á dagskrá. Skipulagið er aðeins breytilegt eftir árgöngum.
11.5.2011 Skólafærninámskeið Skólafærninámskeið verður haldið þriðjudaginn 17. maí fyrir foreldra barna sem að hefja nám við skólann í 1. bekk næsta haust. Meginmarkmið námskeiðsins er að fá foreldra til að koma á vinnustað barna sinna og kynnast því fólki sem þar starfar, skoða húsakynni og aðbúnað og síðast en ekki síst til að kynnast foreldrum væntanlegra skólasystkina barna sinna. Námskeiðið fer fram í fyrirlestrarsal skólans frá kl. 18.00-20.30. (Nánar)
5.5.2011 Brunaæfing Í dag fór fram brunaæfing í skólanum okkar. Æfingin sem var undirbúin að þessu sinni gekk vel fyrir sig. Rýmingaráætlun skólans er að finna í Vegvísinum á bls. 18. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru í morgun. (Myndir)
3.5.2011 Ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn Frá 1. maí til og með 26. ágúst 2011 verður boðið upp á ókeypis, nauðsynlegar tannlækningar fyrir börn tekjulágra foreldra/forráðamanna yngri en 18. Tannlæknar í tannlæknadeild Háskóla Íslands meta hvað teljast nauðsynlegar tannlækningar og þar er þjónustan veitt. Tekið er við umsóknum frá 28. apríl til og með 1. júní 2011. (Meira)
3.5.2011 Myndir frá alþjóðlega dansdeginum Það var mikið fjör í Hvaleyrarskóla á alþjóðlega dansdeginum þann 29. apríl. Nemendur höfðu verið að læra sérstakan dans í tilefni dagsins og dönsuðu hann af hjartans list. (Myndir)
28.4.2011 Alþjóðlegi dansdagurinn á morgun Alþjóðlegi dansdagurinn 29. apríl var kynntur til sögunnar árið 1982 af Alþjóða leikhússtofnuninni (ITI) innan UNESCO og hefur verið haldinn hátíðlegur um heim allan síðan. Markmið dagsins er að auka sýnileika dansins í samfélagi okkar, sýna fram á mikilvægi hans og hvetja stjórnvöld til þess að veita dansinum þann stuðning sem honum ber á öllum stigum skólakerfisins. Nú í ár var saminn sérstakur dans fyrir þennan dag á Íslandi og danskennarar verið hvattir til að kenna hann. Hér í Hvaleyrarskóla hafa nemendur verið að læra þennan dans og munum við að sjálfsögðu dansa hann í skólanum föstudaginn 29. apríl. 19.4.2011 Unnu til verðlauna á skólaskákmóti Hafnarfjarðar Sóley Lind Pálsdóttir í Hvaleyrarskóla varð skólaskákmeistari í yngri flokki á skólaskákmóti Hafnarfjarðar sem haldið var á Ásvöllum 12. apríl sl. Í öðru sæti varð Magni Marelsson sem einnig er í Hvaleyrarskóla. Í þriðja sæti varð Daníel Jóhannesson úr Víðistaðaskóla. Til hamingju krakkar með þennan frábæra árangur.
18.4.2011 Fjölmenni á páskabingói Foreldafélags Hvaleyrarskóla Foreldrafélag Hvaleyrarskóla stóð fyrir páskabingói þriðjudaginn 12. apríl. Foreldrar, börn og aðrir velunnarar skólans fjölmenntu af því tilefni og skemmtu sér mjög vel eins og sjá má á þessum myndum.
18.4.2011 10. bekkir á Skólaþingi Í lok síðasta mánaðar fóru 10. bekkirnir okkar á Skólaþing en þar fara nemendur í hlutverkaleik og fylgja í stórum dráttum reglum um starfshætti Alþingis. Nemendurnir fá tækifæri til að setja sig í spor þingmanna með því að leiða fyrirfram ákveðin málefni sem fyrir þá eru lögð til lykta á þingflokksfundum, nefndarfundum og þingfundum. Þannig er ætlunin að veita innsýn í sambandið milli atburða í samfélaginu, skoðanamyndunar, pólitískra ákvarðana og starfa Alþingis og sýna áhrif almennings, sérfræðinga, fjölmiðla og hagsmunaaðila á löggjafarstarfið. Nemendur eiga að komast að lýðræðislegri niðurstöðu með því að hlusta á og meta rök og álit annarra, tjá eigin skoðun og taka afstöðu. Ferðin heppnaðist mjög vel og tóku nemendur virkan þátt í þinginu og voru duglegir að taka til máls. Ekki er ótrúlegt að í hópnum leynist einhverjir framtíðar þingmenn! (Myndir) 17.4.2011 Páskaleyfi Páskaleyfi nemenda hefst mánudaginn 18. apríl. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 26. apríl.
Starfsfólk Hvaleyrarskóla óskar nemendum og foreldrum þeirra gleðilegra páska.
12.4.2011 Páskabingó Foreldrafélag Hvaleyrarskóla heldur páskabingó í dag, þriðjudaginn 12. apríl, kl. 18.00. Foreldar og börn þeirra eru innilega velkomin.
8.4.2011 Síðasti dagur innritunar í grunnskóla skólaárið 2011-2012 Eins og áður hefur verið auglýst þá er síðasti dagur innritunar nemenda í fyrsta bekk, fæddir árið 2005, í grunnskólum Hafnarfjarðar í dag.
Innritunin fer fram í
grunnskólunum en einnig er hægt að sækja um rafrænt á
www.hafnarfjordur.is
(íbúagátt).
8.4.2011 Vilt þú vekja athygli á verðugu verkefni? Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2011 verða afhent í Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 24. maí næstkomandi. Óskað er eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2011 frá einstaklingum, félögum eða hópum sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum, sem stuðla að eflingu skólastarfs og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins.
Tilnefningar berist á rafrænan hátt með því að fylla út eyðublað á heimasíðu samtakanna www.heimiliogskoli.is. Síðasti skiladagur tilnefninga er 28. apríl 2011.
4.4.2011 Hittumst - hlustum - spjöllum
Upplýsinga- og samráðsfundur
um útfærslur á framkvæmd fjárhagsáætlunar fyrir skólaárið 2011 - 2012.
DAGSKRÁ FUNDARINS 19.30 - 21.00
Niðurstöður fundarins verða síðan birtar á heimasíðu bæjarins
að fundi loknum.
30.3.2011 Glæsilegur árangur í stærðfræðikeppni Flensborgarskólans Verðlaun voru veitt í stærðfræðikeppni grunnskólanna í Hamarssal í Flensborgarskólanum í gær, þriðjudaginn 29. mars. Viðurkenningar voru veittar fyrir 10 efstu sætin í hverjum árgangi og sérstök verðlaun fyrir efstu 3 sætin. Nemendur okkar stóðu sig frábærlega í þessari keppni og fengu alls 10 nemendur úr Hvaleyrarskóla viðurkenningu. Hér fyrir neðan má sjá árangur okkar nemenda. (Myndir)
30.3.2011 Árshátíð miðdeildar Árshátíð miðdeildar fer fram í dag, miðvikudaginn 30. mars, kl. 17.00-19.30. Nonni diskó mun sjá um að nemendur dansi af sér skóna. Sjoppan verður opin og verða seldar flatbökur á góðu verði, 250 kr. Nemendur eru hvattir til að mæta snyrtilegir til fara. Miðaverð er 500 krónur.
29.3.2011 Úrslit í stærðfræðikeppni Flensborgarskólans Í dag, þriðjudaginn 29. mars, verða kynnt úrslit og veittar viðurkenningar í fimmtándu stærðfræðikeppni Flensborgarskólans fyrir grunnskólanema. Athöfnin fer fram í Hamarssal Flensborgarskólans kl. 17:30. Til athafnarinnar er boðið þeim sem urðu í tíu efstu sætunum í hverjum árgangi ásamt foreldrum, kennurum og stjórnendum grunnskólanna.
29.3.2011 Góður rómur gerður að fræðslufundi fyrir foreldra Það voru rúmlega fjörutíu foreldrar sem sátu fræðslufund um áfengis- og vímuvarnir sem haldinn var í gærkvöldi fyrir foreldra nemenda í 8. - 10. bekk. Foreldrar voru almennt ánægðir með fundinn sem var í umsjón þeirra Hjalta Þórs Björnssonar og Jónu Margrétar Ólafsdóttur hjá Lifandi ráðgjöf. Foreldrafélag Hvaleyrarskóla stóð straum af kostnaði vegna fundarins og færum við þeim bestu þakkir fyrir.
28.3.2011 Áfengis- og vímuefnafræðsla - fundur fyrir foreldra í kvöld Fræðslufundur fyrir foreldra nemenda í unglingadeild Hvaleyrarskóla fer fram í kvöld, mánudaginn 28. mars kl. 20.00. Gert er ráð fyrir því að minnsta kosti eitt foreldri mæti fyrir hönd hvers nemanda.
Nemendur í unglingadeild hafa setið fræðslufundi á föstudag og í morgun og er það Jóna Margrét Ólafsdóttir sérfræðingur hjá Lifandi ráðgjöf sem sér um fræðsluna. Áfengis- og vímuefnafræðslan er samstarfsverkefni Hvaleyrarskóla og Foreldrafélags Hvaleyrarskóla sem greiðir fyrir fræðsluna. Stöndum vörð um heilbrigða æsku - tökum þátt í forvarnarstarfi unglingunum okkar til heilla. 28.3.2011 SMT skólaleikur - 100 miða leikurinn
Í dag, mánudaginn 28. mars, hefst SMT
skólaleikurinn okkar eða 100 miða leikurinn eins og hann er oftast nefndur. Á
hverjum degi fá tveir starfsmenn 5 sérmerkta hrósmiða hvor og eiga þeir að
veita nemendum þá fyrir rétta hegðun. Þegar nemandi hefur fengið þennan
sérmerkta hvalamiða þá fer hann í afgreiðsluna og sýnir miðann og dregur
númer. Miðinn er síðan límdur á viðeigandi stað upp á SMT spjaldið sem á eru
100 númer. Ritari skráir hjá sér nafn og það númer sem nemandinn dregur.
Ritari sendir jafnframt tölvupóst til foreldra og lætur þá vita að þeirra barn
hafi fengið þennan sérstaka hrósmiða fyrir rétta og góða hegðun og sé þar með
orðinn þátttakandi í þessum leik.
Skólastjóri ákveður fyrirfram
hvaða röð verður vinningsröð og ákveður einnig hvað verður í umbun fyrir þá
sem eiga númerin í vinningsröð. Yfir þessu hvílir algjör leynd.
Leikurinn vekur ávallt eftirvæntingu og ánægju hjá nemendum og
er ekki ósvipaður bingói þar sem allir eru með en aðeins nokkrir vinna.
Leikurinn stendur yfir í 2 vikur eða 10 skóladaga og eftir það eru úrslit
kynnt og umbunin veitt í framhaldi. 100 miða leikurinn stendur yfir frá mánudeginum 28. mars til föstudagsins 8. apríl. Vinningsröðin verður kynnt mámudaginn 11. apríl.
24.3.2011 Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarfirði fór fram 15. mars í Hafnarborg. Margt var á dagskrá hátíðarinnar en aðalatriðið var upplestur 16 nemenda í 7. bekkjum í grunnskólum Hafnarfjarðar og Álftanesskóla. Fulltrúar okkar í keppninni voru þeir Ingvi Freyr Óskarsson og Róbert Elís Villalobos og stóðu þeir sig með mikilli prýði og vöktu athygli fyrir góðan upplestur og flotta framkomu. Lesararnir voru allir mjög jafnir en Róbert Elís náði þeim frábæra árangri að vera í 3. sæti. Kolbeinn Sveinsson úr Víðistaðaskóla var í 2. sæti og Jökull Breki Arnarsson úr Álftanesskóla var í 1. sæti.
Efnt var til samkeppni um boðskort upplestrarkeppninnar meðal nemenda í 6. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar og var það Alda María Óskarsdóttir í 6. SHS í Hvaleyrarskóla sem átti verðlaunamyndina. Hægt er að smella á myndina til að sjá hana stærri.
24.3.2011 Innritun í grunnskóla skólaárið 2011-2012 Innritun nemenda í fyrsta bekk, sem fæddir eru árið 2005 verður í grunnskólum Hafnarfjarðar 4. - 8. apríl klukkan 9:00 – 15:00.
Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast á milli skólahverfa og þeirra
sem flytja í Hafnarfjörð fyrir næsta skólaár. Innritunin fer fram í
grunnskólunum en einnig er hægt að sækja um rafrænt á www.hafnarfjordur.is
(íbúagátt).
23.3.2011 Vel heppnuð þemavika Vel heppnaðri þemaviku lauk með opnu húsi sl. föstudag, 18. mars. Foreldrum og öðrum góðum gestum gafst þar tækifæri til að sjá hluta af því sem fram fór í vikunni, en megináhersla var lögð á fjölbreytni og upplifun að þessu sinni. Hér fyrir neðan má skoða myndir sem teknar voru í þemavikunni, en þær segja meira en mörg orð um þá ánægju og gleði sem ríkti meðal nemenda og starfsfólks.
15.3.2011 Eitt gull og þrjú silfur á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum Þórey Kristinsdóttir í 9. ÞH stóð sig frábærlega á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum sem haldið var um helgina. Þórey keppti til úrslita í öllum fjórum greinunum. Hún sigraði og varð þar með Íslandsmeistari unglinga í stökki, varð í 2. sæti á jafnvægisslá og gólfi og loks í 5. sæti á tvíslá. Við óskum Þóreyju hjartanlega til hamingju með þennan frábæra árangur.
14.3.2011 Þemavika í Hvaleyrarskóla - Hollusta og hreyfing Í morgun hófst þemavikan í Hvaleyrarskóla. Hefðbundin stundaskrá er brotin upp þessa daga og vinna nemendur að fjölbreyttum verkefnum undir yfirskriftinni Hollusta og hreyfing. Með því að smella á krækjurnar hér fyrir neðan má sjá skipulag fyrir hverja deild.
11.3.2011 Stærðfræðikeppni Flensborgarskólans Miðvikudaginn 16. mars kl.15.00 verður haldin Stærðfræðikeppni Flensborgarskólans fyrir grunnskólanema í Flensborg. Nemendur þurfa að koma sér sjálfir á staðinn en keppnin stendur yfir í u.þ.b. eina klukkustund. Skráning fer fram á mánudaginn hjá ritara eða með því að senda Steinar deildarstjóra tölvupóst steinar@hvaleyrarskoli.is. Hægt er að æfa sig fyrir keppnina með því að skoða verkefnin á heimasíðunni http://flensborg.is/ebs/keppnir/index.htm. Við biðjum foreldra að kynna þetta vel fyrir börnum sínum og hvetja þá til þess að taka þátt. 11.3.2011 Fréttir af kennaranemum Sylvía Guðrún Eggertsdóttir kennaranemi hefur verið í æfingakennslu hjá Bjarnheiði Guðmundsdóttur í 7.BG í samanlagt 7 vikur.
Hvað mótar landið? var spurning sem lögð var fyrir nemendur í 7. BG í
Hvaleyrarskóla. Út frá henni gerði hver nemandi sitt hugarkort. Eftir
hugarkortsgerðina fengu nemendur að nýta netið og bækur til að afla sér
upplýsinga áður en þeir fóru í að útbúa kennsluefni fyrir 5-6 ára börn sem eru
á leikskólanum Hlíðarbergi. Nemendur komu með sínar hugmyndir að kennsluefni
og útfærðu þær á mjög skemmtilegan hátt. Nemendur gerðu margar útgáfur af
spilum, t.d. var eitt spilið samstæðuspil, annað gátuspil svo eitthvað sé
nefnt Nemendur voru einnig með orðaleit fyrir börnin, þeir sömdu sögu og voru
með sína eigin útfærslu af eldgosi.
Þegar nemendur kynntu og kenndu börnunum stóðu þeir sig frábærlega vel og voru
eins og hinir fræknustu fræðimenn. Þeir sýndu börnunum mikinn áhuga og svöruðu
þolinmóðir öllum spurningum frá þeim. Nemendurnir fengu mikið hrós frá
starfsfólki og börnum leikskólans. Hrósin einkenndust af því hvað nemendur
voru kurteisir, þolinmóðir, skemmtilegir og hugmyndaríkir. (Myndir) 8.3.2011 Þemavika Í næstu viku, 14.-18. mars, verður þemavika hjá okkur í Hvaleyrarskóla. Þessa daga verður hefðbundin stundaskrá brotin upp og munu nemendur vinna í aldursblönduðum hópum að fjölbreyttum verkefnum undir yfirskriftinni Hollusta og hreyfing.
Nemendur í 1.-4. bekk mæta kl. 8.20 eins og
venjulega mánudag til fimmtudags og nemendur í 5.-10. bekk mæta kl. 8.10 að
venju. Nemendur í öllum deildum ljúka skóladeginum kl. 13.20 þessa
daga. Föstudaginn 18. mars verður síðan opið hús í skólanum frá kl.
10.00-12.00. 4.3.2011 Öskudagur
Á öskudag er dagskrá í öllum deildum til kl.
11.00. Í mið- og yngri deild er öskudagsball á sal skólans og spil í
heimastofum. Í unglingadeild geta nemendur valið um að taka þátt í
náttfatapartíi í Ásvallalaug eða horfa á bíómynd í fyrirlestrarsal skólans.
Nemendur sem eru í mataráskrift fá samlokur og drykk í lok dagskrár. Sjá nánar
hér. Opið er í frístundaheimilinu Holtaseli fyrir þá nemendur sem eru skráðir þar.
4.3.2011 Góður árangur í Skólahreysti Hvaleyrarskóli tók þátt í Skólahreysti í gær en þar háðu unglingarnir okkar keppni við jafnaldra sína úr öðrum skólum í Hafnarfirði og á Suðurnesjum. Krakkarnir okkar stóðu sig mjög vel jafnt innan vallar sem utan. Eftir harða keppni hafnaði skólinn okkar í 5. sæti. Holtaskóli í Reykjanesbæ sigraði með yfirburðum en aðeins 4 stig skildu á milli 2. og 5. sætis. Keppnislið okkar var skipað þeim Ívari úr 10. bekk, Bryndísi Maríu úr 10. bekk, Hrund úr 9. bekk, Sölva úr 9. bekk, Heiða úr 9. bekk og Pétri úr 10. bekk. Þjálfarar liðsins voru íþróttakennararnir Hulda og Sigmundur og liðsstjóri var Sara Lind sem útskrifaðist frá skólanum okkar sl. vor.
3.3.2011 Skólahreysti í kvöld Hvaleyrarskóli keppir í Skólahreysti í kvöld, fimmtudag í Smáranum í Kópavogi. Keppendur eiga að mæta á svæðið kl. 18 en rúta með stuðningsmönnum fer frá skólanum kl. 18:15 og heim að keppni lokinni kl. 21. Litur skólans í ár er bleikur, svo það er um að gera að mæta í einhverju bleiku og hvetja sitt fólk áfram. Sjá nánar hér http://www.skolahreysti.is/frett.aspx?id=124.
28.2.2011 Kennaranemar í Hvaleyrarskóla Þessar vikurnar eru sjö kennaranemar hjá okkur frá Háskóla Íslands, Menntavísindasviði. Það er afar líflegt að hafa þá og nokkrir þeirra hafa verið hjá okkur í mörg misseri. Óskum við þeim alls hins besta í þeirra störfum.
25.2.2011 Heimsóknir í fjölmiðla Nemendur í 7. bekkjum heimsóttu 365 miðla í vikunni. Börnin skemmtu sér mjög vel og fengu nýja sýn á hvernig það er að vinna í fjölmiðlum og hvernig útsendingar frá útvarpi og sjónvarpi fara fram. Smellið á heiti bekkjanna hér fyrir neðan.
24.2.2011 Skipulagsdagur á föstudag Föstudagurinn 25. febrúar er skipulagsdagur í Hvaleyrarskóla og því fellur öll kennsla niður þann dag.
23.2.2011 Upplestrarhátíðin í Hvaleyrarskóla Upplestrarhátíðin var haldin hátíðleg á sal skólans í gærmorgun þar sem vinningshafar úr bekkjarkeppni 7. bekkjar kepptu um að komast í Hafnarborg á Stóru upplestrarhátíðina. Upplesararnir stóðu sig allir frábærlega, en þeir sem urðu hlutskarpastir voru: Róbert Elís Villalobos, Yngvi Feyr Óskarsson og varamaður var valinn Bjarki Freyr Rebekkuson. Við óskum þeim góðs gengis í Hafnarborg. (Myndir)
16.2.2011 Grunnskólahátíð Hafnarfjarðar Hin árlega Grunnskólahátíð Hafnarfjarðar verður haldin í dag miðvikudaginn 16. febrúar, bæði í Bæjarbíói þar sem leiksýningar fara fram og í íþróttahúsinu Strandgötu þar sem ballið verður haldið. Leiksýningarnar verða kl. 13.00 og aftur kl. 15.00 og eru foreldrar og forráðamenn velkomnir.
Ballið er síðan í kvöld þar sem fram koma m.a. DJ Haffi, Friðrik Dór, Erpur, Akademían og tvö hlutskörpustu atriðin úr Söngvakeppni ÍTH. Húsið opnar kl. 19.00 og ballinu lýkur kl. 23:30.
Athygli er vakin á því að unglingarnir fá leyfi í skólanum eftir hádegi í dag og einnig í fyrstu þremur kennslustundunum á morgun, fimmtudaginn 17. febrúar.
Stormviðvörun Stormur er nú suðvestanlands og er vindhraðinn 18-30 m/sek. Við minnum á samræmdar reglur fyrir skólana á höfuðborgarsvæðinu og biðjum fólk um að senda ekki yngri börn í skólann án fylgdar.
3.2.2011 Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2011 Mennta- og menningarmálaráðuneytið, innanríkisráðuneytið og SAFT standa fyrir ráðstefnu um Internetið á alþjóðlega netöryggisdaginn, þann 8. febrúar 2011 á Hilton hóteli, Nordica. (Meira)
31.1.2011 Þitt er valið - tannverndarvika 2011 Fyrsta vikan í febrúar ár hvert er helguð tannvernd og í ár er áhersla lögð á glerungseyðingu og hvernig stemma megi stigu við henni. Af því tilefni hefur Lýðheilsustöð gefið út veggspjaldið Þitt er valið þar sem lýst er á myndrænan hátt innihaldi algengustu vatns-, ávaxta- og gosdrykkja á markaðnum og áhrifum innihaldsins á tannheilsu. 26.1.2011 Gistigleði fyrir nemendur í unglingadeild Föstudaginn 28. janúar mun starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar Versins bjóða unglingum upp á að dvelja í félagsmiðstöðinni yfir nótt. Viðburður þessi hefur verið kallaður „sleepover“ eða „gistigleði“. „Gistigleði“ hefur verið hefð í félagsmiðstöðvum í Hafnarfirði í nokkur ár. Markmið þessa starfs er að unglingarnir kynnist hvert öðru betur og starfsfólk nái betri tengslum við unglingana. Við teljum þessa leið góða til að hrista hópinn saman og koma á góðum tengslum og góðum starfsanda. (Meira - Leyfisbréf) 21.1.2011 Kynning fyrir nemendur í 10. bekk og foreldra þeirra
Námsframboð
13 framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu verður kynnt fimmtudaginn 27. janúar
kl. 17-19 í opnu húsi í aðalsal Flensborgarskóla. Kynningin er fyrir nemendur
í 10. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar og foreldra þeirra. Hver framhaldsskóli
verður með kynningarbás og námsráðgjafar veita upplýsingar um námsframboð og
inntökuskilyrði skólanna. 20.1.2011 Foreldradagur
Fimmtudaginn 27. janúar 2011 eru nemendur og
foreldrar þeirra boðaðir til viðtals við umsjónarkennara. Kennsla samkvæmt
stundaskrá fellur niður þennan dag en frístundaheimilið Holtasel verður opið.
17.1.2011 Skilaboð frá Ásvallalaug Heil og sæl og gleðilegt nýtt ár með þökk fyrir samstarfið á liðnum árum. Eins og ávallt er talsvert af munum nemenda sem verður eftir í Ásvallalaug. Alltof sjaldan er fatnaður og önnur verðmæti merkt. Nú á nýju ári munum við bregða á það ráð að setja óskilamuni í körfur merktar þeim dögum sem börnin eru í skólasundi. Körfurnar verða síðan á laugarbakkanum, þ.e. mánudagskarfa á mánudögum o.s.frv.
Forstöðumaður Ásvallalaugar
10.1.2011 Gjaldskrárbreytingar í grunnskólum í janúar 2011 Heilsdagsskóli Ákveðið hefur verið að breyta ekki gjaldskrá vegna heilsdagsskóla á vorönn 2011.
Hádegismatur Verð á hádegismat verður 300 kr. fyrir hverja máltíð frá og með fyrsta áskriftartímabili ársins 2011. Hækkar verðið því um 28 kr. pr. máltíð eða um 10%.
Fræðslustjóri
7.1.2011 Viðbrögð þegar skólastarf raskast vegna veðurs Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) hefur gefið út samræmdar reglur fyrir grunnskóla og foreldra um viðbrögð við því þegar skólastarf á höfuðborgarsvæðinu raskast vegna veðurs og ófærðar. Reglurnar má finna í valstikunni vinstra megin á síðunni, Röskun á skólastarfi vegna óveðurs. Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að kynna sér þessar reglur.
17.12.2010
16.12.2010
Ekkert fikt http://www.landsbjorg.is/assets/slysavarnirflugeldar/ekkertfikktvefformat.wmv.
15.12.2010 Hvalrekinn - fréttabréf Hvaleyrarskóla Síðasti Hvalreki ársins er kominn út. Hvalrekinn er sendur til foreldra í tölvupósti og birtur hér á vefsíðu skólans.
13.12.2009
Hæfileikakeppni miðdeildar
10.12.2010
Dagskrá síðustu daga fyrir jól
8.12.2010
Samstarf við leikskólana á Hvaleyrarholti
7.12.2010
Fjöltyngt aðventudagatal
1.12.2010
Syngjandi jól
1.12.2010 Gæðaviðurkenning fyrir Comeniusarverkefni Á dögunum hlaut Hvaleyrarskóli viðurkenningu fyrir eitt af 10 bestu Comeniusarverkefnunum á Íslandi tímabilið 2008-2010. Viðurkenninguna hlaut skólinn fyrir verkefni sem nefnist CLIMATES. Verkefninu er ætlað ýta undir tungumálakennslu yngri barna og örva hæfileika þeirra til að eiga samskipti við aðra þrátt fyrir annað móðurmál. Samstarfsskólar okkar komu frá Ítalíu, Póllandi, Lettlandi, Bretlandi, Spáni, Tyrklandi, Rúmeníu, Svíþjóð, Eistlandi og Portúgal. Kennararnir sem eiga heiðurinn að þessari viðurkenningu eru Bjarnheiður Guðmundsdóttir, María Aðalsteinsdóttir og Sigurborg Hrönn Sævaldsdóttir.
30.11.2010 Hið árlega jólaföndur foreldrafélags Hvaleyrarskóla Hið árlega jólaföndur foreldrafélags Hvaleyrarskóla verður haldið laugardaginn 4. desember kl. 13. Eins og í fyrra þá selur foreldrafélagið föndur á hagstæðu verði eða 500 kr. stykkið.
Boðið verður upp á kaffi og piparkökur en einnig er Verið með sjoppuna opna og selja þar gosdrykki og gotterí. Við biðjum fólk að taka með sér skæri, liti, heftara og lím. Annan efnivið má koma með, eins og límmiða og glimmer.
Endilega að taka ömmur og afa, frændur og frænkur með í föndrið, við bjóðum alla fjölskylduna velkomna.
Með hugann fullan af hetjudraumum Ljóðskáldið Aðalsteinn Ásberg og söngvaskáldið Svavar Knútur heimsóttu skólann okkar á samveru unglingadeildar á miðvikudaginn og fluttu brot úr verkum Steins Steinarr og sögðu frá lífi og list byltingarskáldsins. Ferill Steins var rakinn í ljóðum og söngvum, enda hafa mörg tónskáld sótt innblástur í verk hans. Ádeila, heimspeki, ást og nútími eru stikkorð sem vísa á skáldið sem átti stærstan þátt í formbyltingu ljóðsins á Íslandi. Nemendur unglingadeildar voru góðir áhorfendur og tóku listamennirnir það sérstaklega fram að krakkarnir væru góðir hlustendur og að hér í skólanum væri góður andi. (Myndir)
25.11.2010 Slökkviliðið í heimsókn Slökkviliðið kom í árlega heimsókn í 3. bekki í gær í tilefni af eldvarnarviku. Nemendur fræddust um eldvarnir og hættur sem geta skapast ef óvarlega er farið með eld. Á eftir fengu börnin að fara út og skoða slökkvibíl og sjúkrabíl. (Myndir)
25.11.2010 Alnæmissamtökin á Íslandi heimsóttu 9. og 10. bekki Á mánudaginn heimsótti Einar Þór Jónsson frá Alnæmissamtökunum á Íslandi unglingana okkar í 9. og 10. bekk. Erindi Einars var mjög áhugavert og fræðandi og tókst honum að ná vel til unglinganna okkar. Krakkarnir fengu einnig í hendur vandaða bæklinga með ýmsum fróðleik um HIV og alnæmi. (Myndir)
22.11.2010 Góð gjöf frá Foreldrafélagi Hvaleyrarskóla Á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember sl., komu Sveindís Jóhannsdóttir formaður Foreldrafélags Hvaleyrarskóla og Gísli Guðlaugsson varaformaður færandi hendi og gáfu skólanum glæsilegt ræðupúlt. Skólinn okkar leggur mikla rækt við það að nemendur læri að koma fram og flytja mál sitt skýrt og áheyrilega. Það er örugglega ekki í mörgum skólum, en í skólanum okkar eru ræðupúlt í öllum kennslustofum. Okkur hefur hinsvegar vantað fallegt ræðupúlt til að hafa í hátíðarsal skólans. Við færum stjórn Foreldrafélags Hvaleyrarskóla kærar þakkir fyrir þessa veglegu gjöf sem mun prýða skólann okkar á komandi árum. (Myndir)
18.11.2010 Heilsdagsskóli og mataráskrift Af gefnu tilefni viljum við benda foreldrum og forráðamönnum barna á að breyting eða uppsögn á dvalarsamningi verður að berast fyrir 15. hvers mánaðar og tekur þá gildi 1. dag næsta mánaðar eða um leið og forstöðumaður hefur staðfest breytinguna.
Gjöldin er hægt að greiða með boðgreiðslum (kreditkorti), beingreiðslum eða með greiðsluseðlum. Gjöldin eru að jafnaði innheimt fyrirfram, gjalddagi er þá 1. hvers mánaðar og eindagi 16. hvers mánaðar. Hafi gjald ekki verið greitt á eindaga bætast dráttarvextir við fjárhæðina. Þegar þrír mánuðir eru ógreiddir verður vistinni/áskriftinni sagt upp og í framhaldi verður skuldin send í frekari innheimtu ef ekki hefur verið samið um skuldauppgjör hjá fjárreiðudeild bæjarins. Greitt er fyrir vist í heilsdagsskóla og mat þó að barn sé fjarverandi.
Hægt er að sækja um breytingar á dvalarsamningi á íbúagátt Hafnarfjarðar fyrir Víðistaðaskóla, Öldutúnsskóla, Setbergsskóla og Hvaleyrarskóla á þar til gerðri umsókn en upplýsingar um breytinguna skal jafnframt tilgreina í athugasemdardálkinum. Hjá öðrum skólum er sótt um breytingar hjá forstöðumanni heilsdagsskóla.
12.11.2010
Dagur íslenskrar tungu
12.11.2010
Slegið upp balli
11.11.2010
Jól í skókassa
10.11.2010
Fiestan
Ætlast er til að nemendur mæti prúðbúnir á hátíðina. Nemendur unglingadeildar fá leyfi í fyrstu 3 kennslustundunum fimmtudaginn 11. nóv.
4.11.2010 SMT skólaleikur - 100 miða leikurinn
Mánudaginn 8. nóvember hefst SMT skólaleikurinn
okkar eða 100 miða leikurinn eins og hann er oftast nefndur. Á
hverjum degi fá tveir starfsmenn 5 sérmerkta hrósmiða hvor og eiga þeir að
veita nemendum þá fyrir rétta hegðun. Þegar nemandi hefur fengið þennan
sérmerkta hvalamiða þá fer hann í afgreiðsluna og sýnir miðann og dregur
númer. Miðinn er síðan límdur á viðeigandi stað upp á SMT spjaldið sem á eru
100 númer. Ritari skráir hjá sér nafn og það númer sem nemandinn dregur.
Ritari sendir jafnframt tölvupóst til foreldra og lætur þá vita að þeirra barn
hafi fengið þennan sérstaka hrósmiða fyrir rétta og góða hegðun og sé þar með
orðinn þátttakandi í þessum leik.
Skólastjóri ákveður fyrirfram
hvaða röð verður vinningsröð og ákveður einnig hvað verður í umbun fyrir þá
sem eiga númerin í vinningsröð. Yfir þessu hvílir algjör leynd. Leikurinn
stendur yfir í 2 vikur eða 10 skóladaga og eftir það eru úrslit kynnt og
umbunin veitt í framhaldi. 100 miða leikurinn stendur yfir frá mánudeginum 8. nóvember til mánudagsins 22. nóvember. Vinningsröðin verður kynnt þriðjudaginn 23. nóvember.
3.11.2010 Fundarstjórinn er loksins kominn með fundarhamar Sveinbjörn Kristjánsson íbúi á Hrafnistu kom færandi hendi upp í Hvaleyrarskóla með forláta fundarhamar sem hann smíðaði og gaf okkur. Hvaleyrarskóli er að ljúka sínu fimmta ári sem forystuskóli í Markvissri málörvun. Í því verkefni felst að nemendum er kennt að koma fram og tala upp í púlti alveg frá byrjun skólagöngu og á útskriftarárinu í 10. bekk læra þeir fundarstjórn og ræðumennsku. Fundarhamarinn vantaði samt tilfinnanlega til að fundarstjóri gæti sett og slitið fundi á reisulegan hátt. Með hjálp Guðrúnar Hallgrímsdóttur, iðjuþjálfara á Hrafnistu fundum við dverghagan smið sem vildi vinna verkið fyrir okkur. Þau Guðrún og Sveinbjörn komu í heimsókn í 10. MS og afhentu síðasta fundarstjóra bekkjarins, Ingvari Björnssyni nemanda í 10. MS, hamarinn sem er smíðaður úr mahóní viði og þolir vel góð högg. Ingvar notaði tækifærið og bæði setti og sleit fundi röggsamlega. Nemendur voru mjög ánægðir með gjöfina og klöppuðu vel fyrir.
25.10.2010 Vetrarfrí Vetrarfrí verður í Hvaleyrarskóla mánudaginn 1. nóvember og þriðjudaginn 2. nóvember. Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra ánægjulegra daga í vetrarfríinu.
20.10.2010
Foreldra- og nemendaviðtöl
14.10.2010 Mikið um að vera í vinavikuÞað er búið að vera mikið fjör í vinavikunni okkar. Hér fyrir neðan má líta myndir sem meðal annars voru teknar í vinasamverum í yngri deild og miðdeild og í heimsóknum nokkurra vinabekkja.
12.10.2010 Vinasamvera á morgunÁ morgun, miðvikudaginn 13. október verður haldin vinasamvera í yngri deild og hefst hún um kl. 8.30. Þar munu nemendur í 1.-4. bekk syngja nokkkur vinalög sem þau hafa verið að æfa. Eins og áður hefur verið greint frá mun foreldrafélag skólans afhenda skólanum gjöf við þetta tækifæri. Foreldrar eru hvattir til að koma og taka þátt í þessum viðburði.
12.10.2010 GalíleósjónaukarFyrir nokkrum dögum heimsóttu Sævar Helgi Bragason og Ottó Elíasson okkur í Hvaleyrarskóla og færðu skólanum að gjöf tvo Galíleósjónauka auk heimildarmyndarinnar Horft til himins og tímarit Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnaness. Einar Jónsson náttúrufræðikennari ásamt nemendum í 10. bekk veittu þessari veglegu gjöf viðtöku sem á örugglega eftir að nýtast vel í skólanum okkar.
8.10.2010 Vinavika í HvaleyrarskólaÍ næstu viku höldum við vinaviku hér í Hvaleyraskóla. Við munum tileinka vináttunni sérstaklega tvær kennslustundir á dag, en þar fyrir utan munu kennarar flétta viðfangsefninu inn í allt nám barnanna. Meðal viðfangsefna sem unnin verða eru stofnun vinabekkja. Allir bekkir munu eiga vinabekk og verður fyrsta samvinnuverkefnið þeirra að gera saman vinabönd. Farið verður í ýmsa leiki sem efla vináttu og traust, spiluð félagsvist, örmót og fleira. Unnið verður með tónlist þar sem áherslan verður á vinalög. Þá fáum við einnig góða gesti í skólann.
Á miðvikudagsmorguninn munu yngri bekkirnir koma saman á sal og syngja vinalögin. Við það tækifæri mun foreldrafélag skólans afhenda skólanum gjöf í tilefni af 20 ára afmæli skólans sl. vor. Allir foreldrar eru velkomnir að líta við hjá okkur og taka þátt í starfinu.
Vinavikan endar á því að við förum öll saman í vinagöngu niður á Ásvelli þar sem brugðið verður á leik.
7.10.2010 Starfsfólk á námskeiði um eineltisáætlanirÁ skipulagsdeginum 28. september sl. fengum við Guðjón Ólafsson sérkennslufræðing í heimsókn með námskeið sem fjallar um leiðir til að fyrirbyggja og leysa samskiptavanda. Mikil ánægja var meðal starfsfólks enda nær Guðjón vel til fólks með þessum brýna boðskap. Allir voru sammála um að þetta hafi verið mjög gott og lærdómsríkt námskeið.
5.10.2010 Alþjóðadagur kennara er í dag, 5. októberAlþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur um allan heim 5. október ár hvert að forgöngu UNESCO. Þennan dag eru kennarar heiðraðir af tugum þúsunda nemenda, foreldra og aðgerðasinna í yfir hundrað löndum í öllum heimsálfum. (Meira)
29.09.2010
Dagskrá námskeiðsins: 1. Geir Bjarnason, forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar 2. Helga Margrét Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Heimilis og skóla 3. Umræður
Hlökkum til að sjá sem flesta foreldra á námskeiðinu.
Stjórn Foreldrafélags Hvaleyrarskóla - fyrir börnin okkar -
28.09.2010
Hjördís flutti erindi um Jákvæða skólafærni (SMT) og Linda fjallaði um þróunarverkefnið Byrjendalæsi sem skólinn vinnur að. Hafdís Sigmarsdóttir kennari fræddi foreldra um Markvissa málörvun en Hvaleyrarskóli er forystuskóli á því sviði. Björk Filipsdóttir skólahjúkrunarfræðingur fór yfir hlutverk skólaheilsugæslunnar og Sveindís Jóhannsdóttir formaður foreldrafélagsins kynnti foreldrastarfið. Þá fjölluðu Anna Rún Kristjánsdóttir og Sigmundur Birgir Skúlason íþróttakennarar um skólaíþróttir.
Foreldrar og kennarar snæddu saman kvöldverð sem Sæunn Anna Stefánsdóttir og Arnfríður I. Ingólfsdóttir matreiddu. Í lok námskeiðsins afhenti Helgi Arnarson skólastjóri síðan öllum foreldrum viðurkenningarskjal fyrir góða þátttöku. (Myndir)
24.9.2010 Samráðsfundur kennara í grunnskólum Hafnarfjarðar Mánudaginn 27. september fer fram árlegur samráðsfundur allra kennara í grunnskólum Hafnarfjarðar. Fundurinn fer fram í Lækjarskóla frá kl. 14.30-16.00. Þar gefst kennurum tækifæri til að ræða sín á milli um fagleg mál, hafa samráð og samvinnu um kennslu og störf sín í grunnskólum Hafnarfjarðar.
Engin kennsla verður eftir kl. 14.00 í Hvaleyrarskóla þennan dag.
24.9.2010 Skipulagsdagur Þriðjudagurinn 28. september er skipulagsdagur í Hvaleyrarskóla samkvæmt skóladagatali. Öll kennsla fellur niður þann dag.
24.9.2010 Stöðvum einelti - opnir borgarafundir næstu vikurnar
Nú stendur yfir eineltisátak Heimilis og skóla –
landssamtaka foreldra, Liðsmanna Jerico, Olweusaráætlunarinnar og Ungmennaráðs
SAFT í samstarfi við Símann, mennta- og menningarmálaráðuneytið, félags- og
tryggingamálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið, Samband íslenskra
sveitarfélaga og styrktaraðila, með fundum sem haldnir eru á 11 stöðum á
landinu.
Umfjöllunarefni fundanna er
einelti og ungt fólk, netið og ábyrgð samfélagsins. Leikhópar unglinga undir
handleiðslu leiklistarkennara eða leiðbeinanda á hverjum stað, setja upp
leiksýninguna „Þú ert það sem þú gerir á netinu“ eftir Elítuna og Rannveigu
Þorkelsdóttur.
Jafningjafræðslufundir og
borgarafundir hafa nú verið haldnir í Árborg og á Ísafirði og voru vel sóttir.
Framundan eru fundir á eftirtöldum stöðum: í Reykjanesbæ 28. september,
Sauðárkróki 5. október, Akureyri 6. október, Grundarfirði 12. október,
Fljótsdalshéraði 19. október, Borgarbyggð 21. október, Vestmannaeyjum 26.
október, Höfn í Hornafirði 28. október og í Reykjavík 3. nóvember.
21.9.2010 Skólafærninámskeið fyrir foreldra 1. bekkinga Síðari hluti skólafærninámskeiðs fyrir foreldra nemenda í 1. bekk verður haldinn í fyrirlestrarsal Hvaleyrarskóla í dag þriðjudaginn 21. september 2010. Námskeiðið hefst kl. 18 og lýkur kl. 20.30. Á dagskrá námskeiðsins eru m.a. fyrirlestrar, kynningar og leikir. [Meira]
20.9.2010 Lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda fór fram í gær, sunnudag. Keppninni bárust 1600 hugmyndir í ár. Andri Þór Elmarsson í 7. BG var meðal 45 hugmyndasmiða sem komust í úrslit í keppninni og fengu tækifæri til að vinna áfram að þróun hugmynda sinna í tveggja daga vinnusmiðju. Andri Þór náði þeim frábæra árangri að hljóta 3. sæti í flokki sem nefnist Atvinnuvegir en hugmynd hans nefndist Lestartroll. Við óskum Andra Þór til hamingju með þennan glæsilega árangur. (Frétt á RÚV)
20.9.2010 Fimmtudaginn 30. september mun Helga Margrét Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Heimili og skóla - landsamtökum foreldra, leiða námskeið fyrir bekkjarfulltrúa og aðra áhugasama foreldra í Hvaleyrarskóla. Námskeiðið er frá kl. 20-22 og verður haldið í fyrirlestrarsalnum á neðri hæð skólans.
Markmið námskeiðsins er að fara yfir mikilvægi þess að hafa virkt foreldrasamstarf innan skólans auk þess farið verður yfir hlutverk bekkjarfulltrúa og af hverju þeir skipta máli í skólasamfélaginu.
Í hverjum bekk eru tveir bekkjarfulltrúar og eru bekkjarfulltrúar beðnir um að staðfesta mætingu á námskeiðið til formanns foreldrafélagsins á netfangið sveindis@talnet.is og tilgreina fyrir hvaða bekk þeir koma. Þeir bekkjarfulltrúar sem komast ekki eru vinsamlegast beðnir um að tilnefna varamann í sinn stað.
Foreldrafélag Hvaleyrarskóla hefur auk námskeiðsins keypt möppuna Foreldrabankinn frá Heimili og skóla og mun hver bekkur fá slíka möppu afhenta á fundinum.
Allir áhugasamir foreldrar eru einnig velkomnir þó þeir séu ekki bekkjarfulltrúar og eru þeir beðnir um að senda póst um þátttöku til formanns þannig að hægt sé að áætla nokkurn veginn fjöldann. Að sjálfsögðu er þó í boði að taka ákvörðum um að mæta með stuttum fyrirvara - það verður tekið vel á móti öllum meðan húsrúm leyfir!
Tökum höndum saman og verum virk í skólasamfélaginu, börnunum okkar til heilla!
f.h. stjórnar
Foreldrafélags Hvaleyrarskóla
17.9.2010
Nemendur eiga að mæta 15 mínútum áður en próf hefst þessa daga. Nemendur eru minntir á að koma með öll nauðsynleg gögn s.s. pennaveski og hollt nesti. Við bendum foreldrum jafnframt á mikilvægi svefns, góðrar hvíldar og næringar fyrir börnin. Nánar um samræmd könnunarpróf á www.namsmat.is.
6.9.2010
2.9.2010
Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Börn mega ekki vera á almannafæri utan ofangreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglunum þegar börn 13-16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.
1.9.2010
30.8.2010
30.8.2010
Innheimta gjalda í heilsdagsskóla og mataráskrift Gagnkvæmur skriflegur uppsagnarfrestur á dvalarsamningi og mataráskrift er hálfur mánuður hið minnsta og verður að berast fyrir 15. hvers mánaður og miðast breytingar við 1. næsta mánaðar. Greitt er fyrir vist í heilsdagsskóla og mat þó barn sé fjarverandi. Mataráskrift á vegum Skólamatar ehf. fer eftir skilmálum þess félags. Hægt er að sækja um breytingar á dvalarsamningi á íbúagátt Hafnarfjarðar fyrir Víðistaðaskóla, Öldutúnsskóla, Setbergsskóla og Hvaleyrarskóla á þar til gerðri umsókn. Hjá öðrum skólum þarf að sækja um breytingar hjá forstöðumanni heilsdagsskóla. Vakin er athygli á því að við upphaf hvers skólaárs má búast við að nemandi fái ekki vistun í heilsdagsskóla ef vanskil eru á gjöldum vegna leik- og/eða grunnskóla Hafnarfjarðar.
24.8.2010
23.8.2010
18.8.2010
6.8.2010 Skólasetning
Skólasetning
í Hvaleyrarskóla fer fram mánudaginn 23. ágúst.
Foreldrar eru hvattir til þess að koma með börnum sínum. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 24. ágúst nema hjá 1. bekk, þar verða foreldraviðtöl. Ritfangalistar verða birtir hér á vef skólans miðvikudaginn 18. ágúst. |
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||