Comeniusarverkefni
Hvaleyrarskóli tekur þátt í Comeniusarverkefni sem stendur yfir frá 2008 – 2010. Verkefnið kallast CLIMATES, sem stendur fyrir Creative Languagelearning and Innovative Multicultural Activities Together in European Schools.
Kennarar frá 11 Evrópuþjóðum taka þátt í verkefninu, þ.e. Ísland, Svíðþjóð, Eistland, Lettland, Pólland, Rúmenía, England, Portúgal,Tyrkland, Spánn og Ítalía. Stjórnandi verkefnisins, Silvana Rampone kemur frá Ítalíu. Fulltrúar Hvaleyrarskóla eru Bjarnheiður J. Guðmundsdóttir, María I. Aðalsteinsdóttir og Sigurborg H. Sævaldsdóttir.
Markmið verkefnisins er að örva unga nemendur til að læra og skilja tungumál, siði og venjur annarra Evrópuþjóða. Verkefnið miðar að því að efla samskiptahæfni og samvinnu nemenda óháð búsetu og tungumáli ásamt því að auka umburðarlyndi gagnvart menningu annarra þjóða. Við nálgumst viðfangsefnin með hvatningu og skapandi aðferðum sem kallast CLIL, Content Language and Intergrated Learning (enskan er kennd samhliða viðfangsefninu) og Cooperative Learning. Sömu verkefni eru unnin í hverju landi fyrir sig og höfum við vefsíðu þar sem við deilum verkefnum og hugmyndum og kynnumst landi og þjóð. Nemendur vinna svo með verkefnin og sjá og heyra tungumál samstarfsþjóðanna í gegnum veraldarvefinn. Vefsíða verkefnisins hefur slóðina: http://share.dschola.it/dd4pinerolo/climate/default.aspx
Hluti af þessu Comeniusar verkefni eru kennaraskipti milli þjóðanna, The Travelling Suitcase, þar sem tækifæri gefst til þess að kynna land, þjóð og tungumál.
Dagana 29. ágúst til 2. september 2009 var
vinnufundur haldinn í Hvaleyrarskóla þar sem fulltrúar þjóðanna komu saman og
skiplögðu verkefni komandi skólaárs. Nemendur í yngri- og miðdeild skólans nutu
einnig góðs af heimsókn erlendu kennarana þar sem gestakennarar heimsóttu
nemendur í 2. -7. bekk og kynntu fyrir þeim heimalönd sín á ensku. (sjá myndir).
