Markviss málörvun


Verkefni

Áætlanir

Forystuskóli

Markmið

Fréttir

Glærur

 

18.04.2008
Að koma með hlut að heiman

Fimmtu bekkingar fengu það verkefni hjá umsjónarkennurum sínum að koma með hlut að heiman og lýsa og segja frá fyrir bekkjarfélaga.

Þetta æfir nemendur í að undirbúa sig fyrir púltið og tala án þess að hafa það skrifað á blað. Það krefst smá áræðni, sérstaklega þegar maður vill sýna hlut sem hefur tilfinningalega þýðingu fyrir mann. Þarna voru sýndir bangsar í öllum stærðum og gerðum, sumir með eyrnalokka eða fæðingarvottorð, aðrir það stórir að þeir hafa fengið hlutverk, eins og einn sem var lukkudýr FH. Sumir komu með hluti sem langaafar, langömmur, pabbar og mömmur höfðu eignast og gefið síðan  börnunum sínum, sem einskonar arf. Einnig voru sýndar og sagt frá loðinni dagbók sem geymir örugglega mörg leyndarmálin, hnífar sem má nota í útilegum, íslenski fáninn, litla hafmeyjan, sími og kíkir svo fátt eitt sé nefnt. Þarna skiptir máli að tala hátt og vekja áhuga, og nemendur hlustuðu á af athygli. 

11.04.2008
Bergþórhvoll í ljósum logum
Nemendur í 7. HL settu upp brennuna á Bergþórshvoli í stofunni sinni í morgun. Hildur kennarinn þeirra leyfði þeim að æfa í morgun og í þriðja tíma var allt tilbúið. Þau hafa verið að lesa Njálu, svo þetta var góður endapunktur á lærdómnum. Brennumenn með Flosa í fararbroddi gerðu áras á menn Skarphéðins og varð mikið mannfall. Pappírssverð flugu á loft og kústssköft komu í stað atgeira. Síðan var borinn eldur að húsum með pappírshandritum og frægar setningar úr Njálu flugu á milli leikenda. Við sáum ambáttir og húskerlingar reyna að slökkva eldinn með skjólum. Njál, Bergþóru og Þórð litla fara undir brekán og bíða dauðans Því ung var ég gefin Njáli ....". Auga brennumanns slettist út á kinnar fyrir atbeina Skarphéðins, nema hvað, áður en hann festist undir stoðum úr brennandi bænum. Og Kári flúði bæinn skíðlogandi inn í fatahengi! Erfitt var að festa atburði á filmu, því leikurinn var hraður og ákveðinn og fór um víðan völl. En nemendur læra mest ef þeir geta komið frá sér í einhverju formi, leikriti, sögu, teikningu nú eða ljóði, lærdómnum, þar sem þeirra túlkun ræður ríkjum. En sannfærist og lítið á myndirnar!

10.04.2008
Egla leikin hjá 7. BG

Nemendur í 7. BG  eru að vinna með Eglu í íslensku. Kennarinn þeirra, hún Bjarnheiður, ákvað að vinna með efnið á leikrænan hátt og setja upp smá sýningu þar sem tekin væru fyrir frægustu atriðin úr Eglu. Nemendur tóku mjög vel í þetta. Farið var í búningageymsluna í morgun og fengu börnin að æfa sig og semja leikverk fram að hádegi. Sýningin var svo haldin inn í stofunni þeirra eftir mat. Margir unnu stóra leiksigra, hvort sem um var að ræða hlutverk hests, Egils sjálfs, eða persóna í kringum hann. Egill óð þarna um frá sjö ára aldri, sveiflaði vopnum og drap mann og annan. Krakkarnir höfðu lært vísur Egils utanbókar og texta beint upp úr bókinni. Sögumenn voru til aðstoðar og lásu hátt og snjallt upp. Áhuginn var greinilega mikill, allir vildu gera sitt besta og útkoman var alveg frábær. Ekki var nóg að leikið væri vel, það var búið að leysa gátuna um silfrið og  það þarf skapandi hugsun til að leysa ýmis mál varðandi leiksvið. Einn hópurinn náði sér í vagn til nota sem hest og Brák skellti sér með tilþrifum á sund og fékk jakka vafinn í hnút beint á milli herðablaðanna. En myndir eru sögu ríkari. Takk fyrir góða skemmtun 7. BG!

10.04.2008
Bókakynning í 1.LH
Nemendur í  1. LH voru með bókakynningu í tímanum Markviss málörvun. Þeir komu með uppáhalds bókina sína og sögðu aðeins frá henni í púltinu. Við fengum að vita hvernig Harry Potter bókin byrjar, vegna þess að mamma eins nemanda var að lesa hana sem framhaldssögu fyrir hann á kvöldin. Einnig spruttu ýmsar eðlur upp úr Risaeðlubókinni og þar heyrðu við um eðlur sem við könnuðumst ekkert við, líkt og svanseðlu og krókódílaeðlu. Stafakarlarnir, Prinsessubókin Herrabók og ekki síst bókin Kapteinn Ofurbrók voru líka kynntar. Nemendurnir stóðu þráðbeinir í púltinu, kynntu sig og bókina sína og svöruðu spurningum lútandi efni hennar. Mikið var gaman að sjá svona ákveðna nemendur sem ekki voru hræddir við púltið !

05.02.2008
Álfabyggðir

Ýmsir sérstæðir og skrautlegir álfar sjást í höndunum á  nemendum 1. HJ. Þessi bekkur hefur verið að vinna með álfasögur, búið til sögur og málað stóra og mikla álfabyggð sem er fram á gangi og nú bætast við íbúarnir, Guðjónsen Ívarson fótboltaálfur, Sleikjó Nammiálfur ásamt Voni álfakóngi, álfaprinsessurnar Sara, Tara og Diljá og þó nokkrir vinir þeirra. 

Nemendurnir komu allir upp í púlt teinréttir og kynntu sig og álfinn sinn. Þegar fyrst er komið í púlt, er nægur lærdómur að standa beinn fyrir framan bekkjarfélaga og muna hvað það er sem maður ætlaði að segja. Vel gert, 1. HJ.

05.02.2008
Rökræður í 9. SB

Bekkurinn hennar Sigríðar Bárðardóttur æfði sig í rökræðum í íslenskutíma hjá Malen Sveinsdóttur í dag. Malen hyggst vinna með þetta tjáningarform áfram og æfa nemendurna í kappræðum. Ýmsar góðar tillögur komu fram í morgun, eins og til dæmis var meðmælandi tillögunnar um að ráða snyrtifræðing í fullt starf við skólann mjög sannfærandi. En andmælandi hægindastóla fyrir nemendur kolfelldi þá tillögu, enda vildi hann ekki sjá hér lata og þróttlausa nemendur! 

Þarna var um að ræða óundirbúnar ræður sem ávallt er erfiðara að flytja en þær sem hægt er að semja áður. Næsta skref verður einmitt að undirbúa ræðu með og á móti ákveðnu efni og jafnvel skipta niður í lið og hafa  liðsstjóra sér til hjálpar. Gangi ykkur vel 9. SB!

26.04.2007
Próf í Markvissri málörvun
Prófað verður í Markvissri málörvun á næstu dögum í 1. - 7. bekk. Nemendur í 1. og 2. bekk verða prófaðir úr frásögn við púlt, en nemendur 3. - 7. bekkjar fá lesefni til að æfa sig á heima og eiga einnig að velja sjálfvalið ljóð til flutnings. Verkefnisstjóri og bekkjarkennari meta nemendur og birtist matið í einkunnarbók nemandans. Lokaeinkunnin er byggð á prófinu og vinnu vetrarins.
Gangi ykkur vel, nemendur.

07.03.2007
Með eða á móti stækkun álversins?
Í dag var haldið í 6. HL rökþing um stækkun álversins. Í fyrstu umferð fengu allir að flytja sína frummælendaræðu sem greinilega var vel undirbúin. Nemendurnir höfðu fundið mikil og góð rök fyrir sínu máli. Sumir notuðu töfluna til að teikna útskýringarmyndir en aðrir sýndu gröf máli sínu til stuðnings. Rök eins og : Ef starfsmönnum liði illa á vinnustaðnum sínum þá væru þeir ekki svona meðmæltir álverinu ? eða .. er framtíðin kannski að við flytjum til Mars vegna mengunar? Mengun álversins er hluti af alheimsmengun…… Stækkun álversins kallar á færslu Reykjanesbrautar og það veldur meiri mengun í Vallarhverfinu og Alcan styður íþróttafélögin um margar milljónir á ári. Erum við tilbúin að missa þá peninga? Stærsti hluti bekkjarins kom upp í pontu með mótrök, sem þau fundu á meðan hlustað var á andstæðinga flytja mál sitt. Að koma skoðun sinni á framfæri er eitt af því besta sem hægt er að kenna nemanda. Hún Hildur kennari þeirra á hrós skilið.  [ Myndir ]

02.03.2007
Forvitnilegar blaðafréttir
Nemendur úr 3. JS völdu sér frétt úr dagblaði heima og sögðu síðan frá í tíma hjá henni Jóhönnu upp við púltið. Ein stúlkan hafði séð skemmtilega frétt um afmælissýningu hans Ladda. Afmæli er eitthvað sem allir aldurshópar geta samsamað sig við og glaðst yfir. Við fengum fréttir af söngvakeppninni og gengi Eiríks Haukssonar, en einnig voru sorglegri fréttir, eins og af skemmtibátaslysi í Noregi og minningargrein sem nemandi hafði átt þátt í að skrifa. Á næsta föstudag flytur hinn helmingur bekkjarins sína frétt, hann vandar sig við valið og æfir sig vel - kannski fyrir framan spegil ?

27.02.2007
Upplestrarkeppnin
Það var haldin bekkjarkeppni í 7. bekkjunum fyrir upplestrarhátíðina vikuna 11. – 18. febrúar. Þar voru valdir fjórir nemendur úr hverjum bekk sem síðan munu keppa 6. mars hér í Hvaleyrarskóla um að verða fulltrúar skólans í Stóru Upplestrarhátíðinni í Hafnarborg. Kennarar 7. LH og 7.HJ hafa undirbúið nemendur sína mjög vel og var dómnefnd mikill vandi fyrir höndum að velja úr þessum góða hóp.

Þeir sem munu keppa í Upplestrarkeppninni hér í Hvaleyrarskóla eru: úr 7. LH ; Luis Gísli, Alexander, Sigríður Katrín og Kristín. Úr 7. HJ munu ; Kolfinna, Elísa Sóldís, Gunnar Þór og Bergdís keppa.

27.02.2007
Dýrgripir að heiman

Í 5. LI voru nemendur búnir að velja sér dýrgrip að heiman til að sýna í næsta Markvissa tíma. Rósa, kennarinn þeirra, var búin að leggja línurnar hvernig ætti að koma fram í púltinu og gekk þetta snurðulaust fyrir sig þrátt fyrir fjölmennan bekk. Að koma og segja frá eða lýsa hlut sem valin er heima, er tilvalið verkefni. Margir nemendur úr þessum bekk voru búnir að undirbúa sig vel, vissu sem var að til þess að aðrir hafi ánægju af kynningunni, þarf að leggja vinnu við undirbúning flutnings. Ýmsir komu með hjartfólgna hluti, ýmislegt sem fylgdi uppvexti þeirra sjálfra nú eða foreldra þeirra. Þarna mátti sjá fyrstu barnaskóna, handsaumaðan afrískan kjól, verðlaunapeninga, bangsa og önnur tuskudýr sem höfðu skemmtilega sögu á bak við sig og skeljar frá fjarlægum ströndum svo eitthvað sé nefnt. Þegar svona forvitnilegir hlutir eru kynntir, skapast góð þögn í bekknum og virðing fyrir þeim sem flytur mál sitt í púltinu. Það er eitt af því sem við viljum kenna með Markvissri málörvun.  [ Myndir ]

13.02.2007
Að fræða aðra

Nemendur 2. ÚHG undirbjuggu sinn flutning heima. Þeir komu með hlut sem þeir vildu segja frá og höfðu greinilega aflað sér ýmissa upplýsinga. Við fengum að heyra um virkni sérstakrar ljósaperu og nafn guðföðurs hennar, Edisonar. Sáum sérstaka kókflösku sem var gerð í tilefni af 100 ára afmæli kóksins, verðlaunapeninga og ýmis tuskudýr sem viðkomandi hafði fengið að gjöf, jafnvel þegar hann fæddist. Ýmsir notuðu tæknilega hluti til að slá í gegn, tuskudúkkur sem dönsuðu og hús sem lýstu. En æfingin sem skapast við það að æfa flutning, tala hátt svo allir heyri, og hlusta vel, þetta er hluti af færni nemenda okkar.  [ Myndir ]

08.02.2007
Rökræður
Bekkurinn hennar Guðbjargar bjó sig undir rökræðukeppnina með því að allir liðsmenn komu með ræðu sem hann/hún undirbjó heima. Hvort lið hafði liðstjóra sem ákvað röð sinna ræðumanna. Hann tók eftir ásamt liðinu sínu röksemdir hins liðsins og fann mótrök. Allir nemendur höfðu undirbúið sína ræðu, langflestir komu og fluttu hana í púlti með áherslum, notuðu hendurnar til að leggja áherslu á mál sitt, og svöruðu hikstalaust síðasta ræðumanni. Ýmis rök heyrðust eins og " ..... við lifum í framtíðinni, ekki í fortíðinni og við getum búið okkur til nýjar hefðir. " eða " ....Þorramatur gefur fjölskyldunni færi á að vera saman, og eiga góðar stundir, hefðir skapast sem eru skemmtilegar eins og t.d. í Vestmannaeyjum ( á þjóðhátíð ?) þar sem sviðasulta, harðfiskur og annað góðmeti er í tjöldunum."
Þetta æfir nemendur að hlusta rækilega á flutning hvort annar, vera málefnalegur og æfa flutning í ræðupúlti. Þetta var hin mesta skemmtun. [ Myndir ]

30.01.2007
Fréttir frá 4. SHS
Á þorranum er við hæfi að rifja upp þorraþrælinn eftir Kristján Jónsson, fjallaskáld. Nemendur í 4. SHS lærðu 1. erindið heima og fluttu í pontu. Kennarinn þeirra , hún Sigurborg, hefur greinilega lagt mikla áherslu á við nemendur að horfa fram við flutning á ljóðum. Öll börnin voru mjög upplitsdjörf, enda aldrei betra tækifæri til að æfa þann þátt í framsögn, en þegar maður kann textann utanbókar. Í vetur ætlar hún Sigurborg að leggja meiri áherslur en ella á flutning ljóða úr ræðustólnum. Það þýðir aukin áhersla á tilfinningu fyrir hraða og að flutningurinn nái til áheyrenda . Gangi ykkur vel. [ Myndir ]

18.01.2007
Markviss málörvun í miðdeild
Í miðdeildinni hjá 5. ÓO voru nemendur að draga hluti upp úr poka og fengu eina mínútu til að lýsa þeim fyrir bekkinn. Að tala stanslaust í eina mínútu reynir meira á margur skyldi halda. Sérlega ef ræðan er óundirbúin. Mínútan verður afar löng ef manni dettur lítið í hug, en tíminn líður undur hratt ef þú hefur hugmyndarflug til að lýsa útliti hlutarins, gagnsemi og jafnvel hvaðan hann er kominn. Nemendur þurfa að tala hátt og snjallt, en jafnframt að hugsa næstu setningu og standa fallega í púlti. Nemendurnir hans Ólafs stóðu sig vel, enginn guggnaði, allir tóku þátt og töluðu í sína mínútu. Til hamingju 5. ÓO fyrir góðar framfarir!  [ Myndir ]

17.01.2007
Hvernig er unnið með markvissa málörvun í yngri deild ?
Í 2. AE lásu nemendur upp í púlti álfasögu sem þeir unnu heima í ritunarbók og myndskreyttu. Álfar, búálfar, töfrahringur, púkar og tröll sem allt kemur fyrir í sögum barnanna minna okkur á þjóðsögurnar okkar og gamlar sögur um þrettándann, síðasta dag jóla. Kennarinn þeirra hún Aldís hefur æft með þeim og brýnt að tala hátt, þannig að allir heyra til þeirra. Ekki var annað að sjá að þessir 2. bekkingar hefðu fengið áralanga þjálfun í upplestri, sagan þeirra var hátt og skýrt lesin, nemendur upplitsdjarfir í lokin áður en þeir stigu frá púltinu, enda sögurnar hugmyndaríkar og vel skrifaðar. [ Myndir ]

16.01.2007
Fréttir úr yngri deild
Markviss málörvun: Kennarar í yngri deild hafa margir haft ritunarverkefni bekkjarins á nýju ári: Jólafríið mitt. Þetta íslenskuverkefni er gjarnan samþætt námsgreininni markviss málörvun. Nemendur skrifa söguna sína ýmist í ritunartíma eða sem heimaverkefni, myndskreyta og flytja síðan úr púlti undir leiðsögn kennara síns. Í þessu verkefni fá allir að njóta sín því öll höfum við missterka hæfileika og þarna reynir á hugmyndaríka ritun, myndskreytingar, munnlega frásögn og hlustun, allt í sama verkefninu.
Litið var inn til 4. MA og 3. RK í vikunni 7. – 13. janúar og teknar nokkrar myndir þar sem nemendur fluttu verkefnið sitt. Það var frábært að heyra hvað þau eru orðin heimavön í púltinu, stóðu teinrétt og prúð og töluðu hátt og skýrt. Hluti af þessari þjálfun felst í að hlusta á aðra og taka eftir. Margir nemendur hafa tileinkað sér það og hlusta af athygli. Enda heyrðum við sögur af sprengióða nágrannanum, jólasteik sem tókst ekki við fyrstu tilraun, ferðalögum í jólafríinu,og ömmum og frænkum sem komu í heimsókn frá útlöndum.