Byrjendalæsi
Skólaárin 2009-2010 og 2010-2011 var Hvaleyrarskóli þátttakandi í þróunarverkefni um byrjendalæsi. Verkefnið var unnið í samstarfi við Hraunvallaskóla í Hafnarfirði, Akurskóla í Innri Njarðvík og Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi undir handleiðslu ráðgjafa frá Menntavísindasviði Háskólans á Akureyri. Kennarar 1. og 2. bekkja ásamt sérkennurum tóku þátt í verkefninu. Verkefnið miðaðist við tveggja ára handleiðslu og innleiðingu kennsluaðferðarinnar. Að verkefninu loknu er gengið út frá því að skólinn hafi til að bera þá reynslu og þekkingu sem til þarf til að viðhalda aðferðinni og festa hana í sessi í samstarfi við aðra byrjendalæsisskóla.
Markmið byrjendalæsis er að þróa vinnubrögð í lestrarkennslu í 1. og 2. bekk sem auka lestrarfærni nemenda. Jafnframt er lögð áhersla á aukinn orðaforða, lesskilning og ritun. Vinnubrögð taka mið af kenningum um samvirkar aðferðir og stefna að því að auka sjálfstæði nemenda og hæfni þeirra til samvinnu. Vinna með tal, hlustun, lestur og ritun er felld saman í eina heild og jöfnum höndum er unnið með merkingu máls og tæknilega þætti lestrarnámsins.
Nemendur læra að lesa út frá merkingarbærum textum sem skrifaðir eru fyrir börn. Textarnir eru ríkir af orðaforða og gefa möguleika á skapandi vinnu og umræðum. Jöfnum höndum er lögð áhersla á talmál og reynslu barnanna og textavinnu, samband stafs og hljóðs, sundurgreinandi og samtengjandi aðferðir. Mikil áhersla er einnig á hlutbundna vinnu og að læra í samvinnu við aðra gegn um leik. Námsumhverfið er markvisst gert námshvetjandi m.a. með því að gera verkum nemenda hátt undir höfði og hafa aðgengi að alls kyns bókum fjölbreytt í kennslustofunni.